Hvað lærðum við á liðnu ári!

Á ári sem logaði í misgáfulegum mótmælum og annarri gleði þá lærðum við alveg fullt fullt af skemmtilegum hlutum!

Fólk í áróðursstríði lærði það til dæmis að ef fjölmiðlar voru á staðnum með myndavélar eða bara ef einhver var á staðnum með myndavél þá geturðu alveg steingleymt því að ætla að ljúga því að eitthvað hafi verið svona eða hinsegin. Þessu voru gerð mjög góð skil í hinum annars mjög svo dásamlega atburði við Rauðavatn í vor þegar að vörubílsstjórafávitarnir lokuðu götunni, létu lögguna rústa sér og létu svo eins og þeir hefðu verið alsaklausir og fasistarnir í löggunni hefðu komið algerlega upp úr þurru og byrjað að lemja alla.

Fólk sem ætlar sér að vera geðveikt hart og vera að mótmæla einhverju, hvort það sem er bensínverði eða eigin heimsku þarf að átta sig á því að það lítur ekki út fyrir að vera sérstaklega hart þegar að það liggur grenjandi í fanginu á mömmu sinni öskrandi fasistar.

Ef að löggan segist ætla að beita táragasi, þá er löggan að fara að beita táragasi! Þið fenguð viðvörun en voruð of heimsk eða upptekin af sjálfum ykkur til að drullast í burtu.

Ef 16 ára dóttir þín fékk piparúða í andlitið meðan að hún ásamt hópi af öðrum fávitum sem reyndu að alefli að brjótast inn í lögreglustöð þá átti hún það skilið og það er öllum nema fávitum drullusama um hvort henni og þér líður vel eða illa yfir atvikinu. Hér er hinsvegar ókeypis ábending, ef að ykkur mæðgunum sem lesið langar til að bindast sterkari böndum og stunda sama áhugamálið þá mæli ég með klettaklifri eða fjallabruni eða einhverju álíka göfugu. Aðallega vegna þess að betri nýting á tíma og síðan hitt að þegar að dóttir þín slasast þá lítur þú minna út eins og vanhæf móðir þegar að þú byrjar að væla í fjölmiðlum.

Ef að “besti” vinur þinn sem er búinn að vera með þér á fullu að mótmæla og tala við fjölmiðla með þér tekur uppá því að lenda “óvart” í því að kýla lögreglumann í andlitið þá þarftu að vera annaðhvort mjög heimskur eða haldinn gullfiskaminni til að halda það að þú komist upp með það að segja að þú kannist ekkert við viðkomandi! Þér er hinsvegar frjálst að reyna það … málstaður þinn fer náttúrulega í klósettið um leið en það er annað mál!

Íslendingar kunna ekki að mótmæla, eða þeir sem velja að mótmæla eru svo heimskir, að öll mótmæli á árinu enduðu í vitleysu og mótmælendunum tókst öllum að glutra niður samúð og velvild almennings.

Hver ein og einasta auglýsing sem Byr sparisjóður lét framleiða árinu var léleg og kjánaleg og seldi vonandi ekki nokkrum einasta einstaklingi nokkurn einasta hlut! Páll Óskar að væla um að hann geti sent sms úr 12 ára símanum sínum og maðurinn með ömurlegu röddina að reyna að plokka einhverja þúsundkarla af nýbökuðum foreldrum. En maður skyldi þó aldrei vera of svartsýnn, skortur á fávitum er ekki það sem þetta þjóðfélag glímir við.

Íslenskir leikarar kunna ekki að leika og það íslenskar þáttaraðir eru bara sönnun á því og ekkert annað! Það að íslenskir leikarar hafi gráðu upp á það að þeir hafi eytt þremur árum ævi sinnar í það að kúka í krukkur og tralla er sönnun á því einu að þeir kunna ekki að leika, ofleika kannski, en fólk sem ætlar að hafa viðurværi sitt af því að leika fyrir framan myndavélar væri nær að sleppa því að prumpa og tralla og þá vonandi verður leikurinn áhorfanlegur.

Fólk sem hefur ekki hugmynd út á hvað kapítalismi gengur og heldur að til sé bæði frjálshyggja og ný-frjálshyggja er heimkst og ætti að sjá sóma sinn í að halda kjafti og sleppa því að básúna moðreyk út um rassgatið á sér!

Og svo lærðum við örugglega eitthvað meira á árinu sem er að líða en ég get ekki munað eftir neinu öðru í augnablikinu …

Út að aka

Svona í kringum jólin þá er maður alltaf á rúntinum í og frá siðmenningunni og aldrei verra að rekast á einhverja á leiðinni, eða hvað?

Djöfull langar mig skyndilega eitthvað í bíl!

Til hamingju Noregur

Á miðnætti í nótt að norskum tíma og jafnvel Zimbabveskum tíma, sem er við lýði í Zimbabve þar sem notaður er Zimbabve dollar eða dalur upp á ástkæra ylhýra án þess að Zimbabve komi þessari færslu nokkuð við heldur er ég bara að láta þig lesa áfram og áfram eitthvað sem kemur þessari færslu ekkert við og þennan tíma færðu aldrei aftur. Allaveganna, á miðnætti í nótt í Noregi gengu í garð lög sem ganga í grundvallaratriðum út á það að óheimilt er að afhenda konum greiðslu í formi peninga fyrir þá sjálfsögðu þjónustu er allar konur voru fæddar til að veita.

Hinsvegar er ennþá heimilt að fæða, klæða, skjóta þaki yfir höfuð og hégómavæða konur sem greiðslu fyrir blíðu svo fremi að þú sýnir þá sjálfsögðu kurteisi að þræða eitt stykki glóandi glingur upp á einhvern 10 fingra luðrunnar, sé hún á annað borð heppin að hafa ennþá 10 fingur. Bara svo hún hafi úr nógu að moða(helmingi þinna eigna) velji hún að yfirgefa þig til að hefja lífsýnasöfnun á sem breiðustum vettfangi.

Norðmenn eiga það reyndar sameiginlegt með Svíþjóð að þar tröllríður húsum hinn öfgaheimski pólitíski rétttrúnaður sósíalísks velferðarkerfis að karlmenn séu aumingjar og konur englar. Lögin ganga út á það að heimilt er að bjóða vændi en óheimilt er að kaupa það,  því það hefur jú reynst ófárri konunni of erfitt að hrópa nauðgun þegar hún hefur ekki fengið eitthvað sem hana langaði í frá einhverjum óheppnum karlmanninum, nú þurfa norskar konur bara að hrópa VÆNDI!

Brokeback Mountain

Fórum í morgun að njóta þess að ganga á fjall í myrkri, veðurstofan lofaði léttskýjuðu fyrir norðan … ég neyðist víst til að kýla einhvern á næsta veðurstofufylleríi.

Fjallið var þakið hjarni sem alla jafna er gott á jafnsléttu en ekki jafn skemmtilegt í brekkum, eitthvað var þó um púðursnjó þegar ofar var komið, sem er leiðinlegur á leiðinni upp en skemmtilegur á leiðinni niður. Ótrúlegt hvað margt er mismunandi.

Skyggnið var allt að drepa, sérstaklega efst, við veltum því fyrir okkur að sleppa því að leita að vörðunni …. en við fundum hana víst!

Æ nei!

Mig rak í rogastans í dag þegar að ég rak augun í frétt á forsíðu fréttablaðsins þess efnis að þjóðkirkjan fái einhverjum 400 milljónum lægri fjárframlög en gert var ráð fyrir eða þeir fengu í fyrra eða eitthvað …

Allaveganna … SHITT. Spáið í þessu, fólk sem fer á fætur þegar því hentar, gerir það sem því hentar svona alla jafna og virðist hafa þær kvaðir einar að þurfa að fara á fætur svona upp úr 10 á sunnudögum til að ljúga því að fólki heimurinn hafi verið skapaður af ímynduðum geimkarli sem býr einhversstaðar(væntanlega í geimnum). Þetta fólk fær 400 milljón krónum minna af skattfé ríkisins til þess að ljúga og bulla. Æ nei!

Svo sá ég einhverja frétt um það í fréttum RÚV að “gjafavara” hefði hækkað um allt að tugi þúsunda. VÁ! En hei, hvað í fjandanum er gjafavara? Er ekki allt gjafavara, þú hlýtur að geta gefið allt og það er þar af leiðandi gjafavara.

En nei, gjafavara er víst eitthvað algerlega gagnslaust drasl sem hefur algerlega ekki neitt notagildi, kallast víst skraut. Allaveganna hér er ábending: ef þú ert það mikill retharður að þú gefur fólki skraut þá er mér ,og vonandi öllu þenkjandi fólki, gersamlega drullusama hversu marga eða fáa fimmþúsundkalla þú þurftir að punga út fyrir drasli sem hvaða lúði sem er getur framleitt.  Ef þú ert það mikill retharður að þú gefur fólki skraut þá vona ég að það geri þig gjaldþrota!

Laxveiðihylur dauðans og frænku hans!

Klósett dauðans

Ek ann ímugust

Á leið minni úr borg óttans í siðmenninguna þá gat ég ekki annað en glaðst yfir þeirri staðreynd að á Íslandi er fjöldi rassálfa sem einhverra hluta vegna gat ekki fundið upp á neinu meira atvinnuskapandi en að búa til einhverja helvítis sjoppukjarna í kringum hringveginn.

Ég gat ekki annað en glaðst vegna þess að þessir rassálfafávitar skella niður einhverri helvítis hamborgarabúllu á hringveginn þá sér vegagerðin sig alltaf knúin til að skella niður einhverjum helvítis 70 og 50 km/klst köflum næstu 2-3 km til og frá þessum rassborukrummaskuðum frá helvíti.

Dæmi um þetta er Varmahlíð, ekki bara það að við Varmahlíð sé T-gatnamót þar sem leiðin til Akureyrar(gulls jarðar) sé ekki aðalleið heldur hefur verið troðið þar einhverjum helvítis 50 km hommalínum á veginn. Eins og mann langi eitthvað að hægja á sér á leiðinni heim, fjandinn hafi það.

Nú vilja kannski einhverjir fara að halda því fram Varmahlíð sé þéttbýli og því þurfi að grípa til þessara ráðstafana. En hey bíddu … það eru svona 7 hús á Varmahlíð sem er svona álíka fjöldi og á meðalsveitabæ og bændur hafa almennt vit á því að drullast til þess að byggja húsin sín fjarri vegum.

Og svo er þetta bara fyrirbyggjandi. Ef einhver er á veginum og hann er of seinn til að forða sér þá þýðir það að hann sé offitusjúklingur og þá skiptir ekki máli hvort að hann verður fyrir bíl í dag og deyr eða fær hjartaáfall á morgun. Reyndar er verið að spara ríkinu stórfé með því að farga þeim. Verst er þó ef að viðkomandi er einstæður þannig að enginn sé eftir til að borga skemmdirnar á bílnum. Þetta felur það í sér að íbúar viðkomandi afætusveitarfélaga drullast til þess að halda sér í formi eða drullast til þess að vera ekki í göngutúrum hringveginum sýnandi það og sannandi hvað þeir eru ótrúlega fokking heimskir og hugmyndasnauðir að þeir geti ekki drullast til að labba eitthvert annað.

Spógelafu kansjitsú

Ætlaði að horfa á alla fóstbræðrasketsana á youtube í gær en þá voru þeir skyndilega horfnir, ég held ég geti ekki lifað áfram án þeirra. Þannig að ég hljóp út í skífu og keypti allar seríurnar á DVD.

Eða bíddu … nei alveg rétt ég gerði það EKKI. Sennilega vegna þess að þó svo að fóstbræður eigi fyndin atriði þá lifi ég alveg ágætlega án þess að sjá þau, nógu ágætlega til þess að þurfa ekki að kaupa mér þættina á DVD.

M.Ö.O. ég vil engar jólagjafir sem kosta minna en hundrað þúsund og sérstaklega ekki einhverja helvítis DVD diska með fóstbræðrum. Þið sem haldið að þið getið bara snuðað mig með því að skella einhverjum helvítis mynddiskum og bókum í jólapakkann minn eruð að misskilja sanna merkingu jólanna.

Jólin snúast ekki um góðan mat, samveru með fjölskyldunni eða eitthvað svona djöfulsins kjaftæði. Þetta snýst allt um að éta yfir sig og safna skuldum bara til þess að njóta þess í 3 daga að vera til!

Og ef þið haldið að þið getið eitthvað svindlað á jólunum og kennt kreppunni um það eða einhverju öðru kjaftæði. Þá kem ég og kveiki í húsinu ykkar og sel börnin ykkar í ánauð.

99999 er ekki jafnt og 100000, þetta er ekki flókið!

Ronskie Paulus!

Eitt merki þess að Bandaríkjamenn séu ekkert allt of skýrir í kollinum er sú staðreynd að Ron Paul er ekki verðandi forseti.

Hefði ég sett texta hérna, þá hefði enginn nennt að lesa hann …