11.september

Hér ætla ég að halda utan um nokkra tengla með áhugavert efni er varðar 11. september. Samsæriskenningar, sönnunargögn, heimildarmyndir og álit fræðimanna um hrun hrun tvíburaturnanna, hrun byggingu 7 og mjög svo undarlegan flugferil flugvélarinnar sem á að hafa flogið á pentagon!

Ég mun bæta við tenglum á efni sem mér finnst áhugavert og verður þessi síða því í “sífelldri” endurnýjun.

http://blip.tv/file/306082/ - Richard Gage Arkitekt heldur 2ja tima fyrirlestur þar sem hann reifar sönnunargögnin fyrir því að eldur hafi EKKI valdið hruni tvíburaturnanna og byggingar 7

Loose change - Fyrsta heimildarmyndin um þetta sem ég sá, það var árið 2005. Hér er sýnt fram á sönnunargögn fyrir sprengingum. Einnig eru tengsl ýmissra aðila innbyrðis í hringrásinni reifuð sem og rætt um þá glæpi sem stundaðir voru í skjóli vitneskjunnar um yfirvofandi hryðjuverkaárásar.
Martial law 9/11: Rise of the police state - Þetta er samsærismynd allra samsærismynda. En í þessari mynd talar Alex Jones um samsærið 11.september og kynnir tengslin milli valdamanna í Bandaríkjunum og nasista, sem og að ræða leyniklíkuna sem helstu haukarnir í Bandaríkjunum virðast vera meðlimir í. Mæli ekki með því að byrja á þessari ef menn vilja kynna sér efnið.

9/11 mysteries  - Enn ein af þessum heimildarmyndum, ítarleg tímagögn, og farið í undirstöðuatriðin er lúta að byggingunum og hvernig þær hrundu.

9/11: Greatest lie ever sold - Þessi bætir ekki miklu við, en þó einhverju. Þessi mynd er á svipuðu reiki og Martial law 9/11 aðalvinkillinn er samsærið og minni áhersla lögð á eðli sprenginganna.
The great conspiracy - Barrie Zwicker fjallar um óvönduð vinnubrögð fjölmiðla sem og líkindin með 11.september atburðunum og öðrum atburðunum líkt og Tonkin-flóa atvikinu og þegar Bandaríkjamönnum var seld lygi til að afla innrásinni í Kuweit stuðnings.
September 11: Evidence to the contrary REDUX 2006 - Ein önnur myndin, notfærir sér nokkuð af myndefni annara mynda en inniheldur kafla þar sem hrun tvíburaturnanna er tímamælt út frá hljóðskrám myndavéla og jarðskjálftamælum.

Skildu eftir athugasemd