Stjörnuhliðið
- on 03.27.06
- Menning
- 1 Comment
- Digg
- Del.icio.us
Eftir að hafa horft á alla 8. þáttaröð af Stargate þá fannst mér nóg komið, óvinirnir voru horfnir og söguþráðurinn farinn að þynnast örlítið og því leið mér bara nokkuð vel þegar að 8.þáttaröð endaði.
Þegar að mér síðan varð kunnugt um það að 9. þáttaröð væri komin út og 10 væri í vinnslu þá fór ég að hugsa, af hverju ekki að láta gott heita. Þetta var bara búið, meistari Richard Dean Anderson var horfinn á braut og í hans stað kominn Beau Bridges og Ben Browder.
