Of mikið bara

Eitt af því sem er svo frábært við að hafa margar sjónvarpsstöðvar er ekki það að framboðið af sjónvarpsefni aukist eitthvað, þó svo að það aukist, heldur það að maður getur skipt oftar um stöð án þess að vera kominn hringinn. Núna nýt ég þess t.d. að hafa skjáinn sem inniheldur 14 stöðvar og til [...]

Já!

Sannkölluð gamalmennastund átti sér stað í vinnunni í dag. Gamalmennastund felst í því að eldra fólk lýsir skilningsleysi sínu á yngra fólki og dæsir. Gamalmennin skilja ekkert í því hvers vegna við yngra fólkið erum orðin svona skuldsett og eigum svona mikið af drasli. Síðan í lokin enda gamalmennin samtalin á því að tjá þá [...]

Segðu L!

Eitt af því sem ég hef rekið augun í á öldum ljósvakans er auglýsing skjás eins um þáttinn L-orðið. Það sem er svo merkilegt við þessa auglýsingu og væntanlega þáttinn líka er það að nánast engin þeirra ,sem birtast í auglýsingunni, brosir. Þær virðast allar vera bitrar, lífið hjá þeim öllum er ömurlegt. Þetta eru [...]

Til hamingju Akureyri!

Ég ætla að hrósa kjömmunum hjá Akureyrarbæ sem datt í hug að fara að planta niður hraðahindrununum í kringum VMA, ástæða þess að ég ætla að hrósa þeim er sú að þessar hraðahindranir eru svo endalaust heimskulegar. Hraðahindranir eru í eðli sínu heimskulegar þannig að í raun er nóg að segja hraðahindrun og þú ert [...]

Orðabókin!

Í þættinum í dag verða tekin fyrir orðin jafnrétti og jafnstaða.
Jafnrétti er einfalt og gegnsætt orð sem vísir til þess að rétturinn sé jafn og í framhaldi af því mætti segja sem svo að þar sem jafnrétti er við lýði njóta allir jafns réttar. Einfalt!
Jafnstaða er svo það þegar að hlutföll einhverra hópa innan heildarinnar [...]

Öldur Ljósvakans

Ég hef grun um það að ofvirkni meðal fullorðinna eigi eftir að aukast umtalsvert á næstu dögum. Ástæðan er NFS.
Nýja fréttastöðin eins og hún ku víst heita sendir út sama efnið klukkutíma eftir klukkutíma, dag eftir dag. Fyrst byrja þeir á Íslandi í býtið sem vill svo vel til að er einnig sent út á [...]

Ídol

Ídol nammi, Ídol gos og jafnvel Ídol bílar, en hvenær kemur það allra nauðsynlegasta?
Ídol skeinipappír!

Veðurfréttir

Það er eitt sem ég hef aldrei skilið með blessaðar veðurfréttirnar. Hvers vegna eyða veðurfréttamennirnir megninu af tímanum í það að ræða hvernig veðrið var í dag? Fyrst af öllu þá er það ekki beinlínis frétt hvernig veðrið var í dag, það vita það allir, nema að sjálfsögðu þeir örfáu sem vita það ekki, en [...]

Nokkrar hressar

Já, var að enda við að horfa á Stakeout með Emilio Esteves og Richard Dreyfuss. Ein af þessum sígildu löggumyndum sem fylgja svo einfaldri formúlu en eru samt svo góðar. Varast ber þó að tengja saman sígilt og gamalt, orðið sígilt bendir til þess að viðkomandi sé ávallt jafngott hversu gamalt sem það er. Helvíti [...]

Skiltalæsi

Mér finnst alveg frábært hversu sumu fólki er það um megn að sjá umferðarskilti eða fara eftir þeim. T.a.m. var ég við störf í dag, efst í Grenilundi og höfðum við grafið sundur tengigötuna Grenilund til þess að heimta hita hinu megin við götuna þá. Það í sjálfu sér væri ekki í frásögur færandi nema [...]