Equilibrium – Turis Fratyr
- þann 07.10.06
- Forvitnilegt, Plötudómar, Snillingar
- 2 Athugasemdir
- Digg
- Del.icio.us
Þá er komið að nýjum plötudómi, síðast skrifaði ég plötudóm í fornöld þannig að mér þótti við hæfi að skella hér inn einhverju sem á væri hlýðandi. Eins og alþjóð veit er tónlistarmarkaðurinn banvænn frumskógur og nema menn vilji festast í dauðagildrum bilaðra plata líkt og þeim er snúið er af tileinkuðum skífuþeytlum í gríð og erg á öldum ljósvakans verða menn (og konur) að vera varir um sig og stíga niður fæti af varkárni annars fer nú gamanið aðeins að kárna og fá menn þá illt í fótinn eins og einhver sagði hér um öldina.
En rétt fannst mér að taka fyrir hljómsveit sem er svo frábær að hún hentar við öll tækifæri, en sjaldan er kátra pilta að sakna þar sem ungar meyjar leika við hvern sinn fingur, né ætti skífu þá að vanta í handraðann þar sem menn vilja gjöra góða veislu.
En eins og titillinn gefur til kynna heitir skífa sú Turis fratyr og er með nokkrum kænum drengjum í hinni allt svo þýsku sveit Equilibrium og hafa jafn ljúfar nótur ekki borist frá Þýskalandi í svipuðum stíl frá því Rammstein voru og hétu og eru.
En lagalisti skífunnar er eftirfarandi og skyldi engan undra!
1. Turis Fratyr
2. Wingthors Hammer -Mjölnir Hamar Þórs
3. Unter der Eiche – Undir eikinni
4. Der Sturm – Stormurinn
5. Widars Hallen – Höll Viðars
6. Met – Mjöður
7. Heimdalls Ruf – Kall Heimdalls
8. Die Prophezeiung – Spádómurinn
9. Nordheim – Norðurheimur
10. Im Fackelschein – Í kastljósinu(betri þýðing óskast)
11. Tote Heldensagen – Hetjukvæðin(fallnar hetjur)
12. Wald der Freiheit – Skógur frelsisins
13. Shingo Murata
Þeir félagar í Equilibrium blanda á meistaralegan hátt saman mörgum stefnum málmsins svokallaða svo að úr verður þjóðlagamálmur góður en þemað er vissulega æsir og má því einnig nefna þetta víkingamálm.
Það sem einkennir tónlist þessa er fyrst og fremst sterk blanda af málmi með riffum og áköfum trommutöktum og áhugaverðu rumski en undir niðri er undurfagra þjóðlaga tónlist að finna. Drengirnir segjast vera að þessu til þess að hafa gaman og það skín í gegn því þetta er einfaldlega stórskemmtilegt á að hlýða og langar menn helst að hoppa og skoppa í sætinu á meðan að maður hlýðir á tónlist í anda forfeðranna í austri!
Þeir kátu piltar syngja og rumska á sjálfsögðu á þýsku sem veitir þessari tónlist einvörðungu aukinn kraft því augljóslega er þjóðlagatónlist ekki ætlað að vera sungin á ensku. Það er ekki laust við það að manni finnist maður vera kominn á langskip í fjörðum Noregs með eða á móti Haraldi háfagra á leið til orrustu og veldur þar hvort er hin góða blanda málmsins og þjóðlagatónlistarinnar og rumsk söngvarans og er mörgum hljóðfærum beitt til þess að búa til sem ríkasta innlifun í þennan norræna heim!
Deili síðan með mönnum (og konum) tveimur lögum sem mér finnst standa styrkum fótum á skífu þessari!
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
og
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Ég hef reindar bara hlustað á þessi tvö lög sem þú bendir hér á en ég verð að segja að ég er þér bara alveg hjartanlega sammála, þessi tónlist er alveg hreint eðall. Gaman að heyra svona smá tilbreytingu í málminum þó að ég viti til að þessi stefna sé til á meðal frænda okkar í norðri en það að þeir skuli syngja tónlistina á þýsku er það sem heillar mig hvað mest, enda er ég temilegur áhugamaður um þýskt túngumál.
En við höfum það ekki lengra að sinni, hlökkum bara til að fylgjast með þeim í framtíðinni.
[...] er ég lýsti þeirri miklu list sem hópur hinna þýsku gjörningalistamanna framdi undir heitinu Turis Fratyr . Það var fyrir 2 árum síðan. Síðan þá hefur þessum miklu snillingum auðnast það að [...]