Hvað er …

Hvað er kraftur, er það 190 hestöfl og hröðun þegar þú þarfnast þess … Nú er ég ekki eðlisfræðingur, en ég er nokkuð viss um það að hestöfl eru ekki mælikvarði á kraft! Þannig að svarið er NEI! Kraftur er ekki 190 hö!!!

Hin bleika lesblinda?

Undanfarna morgna hefi ég átt í svolitlum netævintýrum, ég hefi flakkað um ógnarslóðir þær sem ritdeilur feminísta og þeim sem eru ósammála, þeim sem eru feministum ósammála hafa oft verið nefndir “stuðningsmenn mansals, barnakláms og kynlífsþrælkunar. En það er önnur saga. Þetta hófst allt saman með því að í þætti þeim er nefndur Silfur Egils [...]