Fávitar tímabilsins X

Já það er komið að því að fyrir tímabilið x veiti ég verðlaun fyrir mestu fávitana.  Og tilnefndir eru ótrúlegt en satt íslenskir listamenn. Og tilnefningin kemur ekki í kjölfar þess að þetta lið sé allt mætt á klakann til að ræða um nýsköpun meðan að þeir rembast við að semja eins og margar útgáfur [...]

Koma sterkir inn …

Zonaria er hljómsveit sem ég var að uppgötva og eins og segir í fyrirsögn þá koma þeir sterkir inn. Drengirnir spila melódískan dauðametal eða svíametal eins og einhverjir vilja kannski kalla þetta, sem er hreint út sagt ótrúlegt þegar tekið er tillit til þess að drengirnir koma frá Umeå í Norður Svíþjóð. Umeå er semsagt [...]

Það var og

Menn eru búnir að vera að senda mér rosalega marga tölvupósta til að leita ráða um hvaða sjónvarpsþættir eru góðir. Alla jafna er ég ekkert að setja það fyrir mig að leysa vanda annara en á þessum tímum tel ég það ekki vera í minum verkahring að synda á móti straumnum. Þessa dagana er ekki [...]

Sko mig …

Maður er alltaf að finna eitthvað ferskt og gamalt á netinu, ótrúlegt en satt haldið þið ekki bara að maður hafi ekki rekist á þennan hérna kappa!

Epískt!

Hafi nokkurn tíma nokkuð ,sem sýnt hefur verið í sjónvarpi, átt þann heiður skilið að vera kallað Epískt þá er það meðfylgjandi myndbútur!

Þetta er bara einum of EPÍSKT!

Rífandi góðæri!

Já, það er aldeilis gaman að fletta blöðunum þessa dagana. Lesa forsíðufréttir blaðann sem fjalla allar meira eða minna um hið stórkostlega góðæri sem skekur Ísland líkt og … líkt og … líkt og orð fá ekki lýst! En hvað er ég að segja, þið vitið þetta! Það hefur aldrei verið betra að vera Íslendingur! [...]

Bók ársins!

Ég þoli það ekki þegar að fólk heldur því að fram að það að eiga enga peninga sé orsök fjárhagsáhyggja. Ég meina, ef þú átt ekki eitthvað, hvernig geturðu þá haft áhyggjur af því? Nei nákvæmlega!
Já, það er ekki hægt að segja annað en að í þessu rífandi góðæri sem nú er við völd að [...]

Heilög menning!

350 eintök!

Jæja, ég var að leggja lokahönd á ljóðabókina mína. Mun hún bera nafnið Konur eiga heima í eldhúsinu. Bókin inniheldur mörg merk ljóð eins og uppþvottaburstinn, vaskurinn, píparinn, þvottavélin, þvottabrettið, sápa, þegiðu kerling, hún gekk á hurð, matur hjá tengdó, ég má eiga aðrar kærustur, hvað heldurðu eiginlega að þú sért, sakna þín ekki neitt, [...]

Sviðin jörð!

Sú saga gengur fjöllunum hærra hér á landi að hér ríki kreppa. Ég veit ekki hvaðan sú saga er upprunnin en það ætti að vera öllum ljóst að hér á landi ríkir engin kreppa enda hefur engin fundið áhrif þessarar kreppu! 
Ég hefi hinsvegar kenningu um það hvaðan þessi saga um kreppu er upprunnin. Hún er [...]