Ísland er í sárum eftir búálfavæðinguna!

„Í dag yfirgefur Baddi búálfur Stjórnarráðið. Við tökum við gríðarmiklum erfiðleikum, við erfum þá frá þeirri búálfavæðingu sem leikið hefur Ísland grátt. Ísland er í sárum eftir Badda Búálf,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra þegar ný ríkisstjórn Samfylkingar og VG var kynnt. Steingrímur segir engan vafa leika á að ný ríkisstjórn marki tímamót. [...]