Nes Snes og BLES!

Þar sem nú er prófatíð og maður hefur ekkert nema lausan tíma til að eyða þá er ég að sjálfsögðu búinn að hanga á youtube. Og hvað finnur maður ekki á youtube?

Meðal myndbanda sem ég fann ekki á youtube er “extreme ironing” myndbandið með Geir Ólafs, “extreme dishwashing” með Urðu, “extreme drinking” með Kidda Gólster eða “extreme not killing yourself on a motorcycle” með Svabb-Fresh.

En meðal dásamlegra myndbanda sem ég fann á youtube og vakti upp dásamlegar minningar úr æskunni var myndband úr double dragon 2. Stórkostlegum leik sem enginn sem er ekki moðhaus og rassálfur man ekki eftir. Tónlistin var dásamleg, brögðin voru dásamleg og leikurinn hreint út sagt dásamlegur! Hvar annarsstaðar en í Double dragon færðu að ganga um og berja einhverjar stórbrjósta trukkalessur í bleiku og síðhærð faggaógeð í grænum buxum bera að ofan og með axlabönd?  Að ekki sé minnst á blúsbræðurnar sem koma alltaf 2 saman í hvítum jökkum og með sólgleraugu og svo Hanson bræðurna vopnaða sverðum! Klassík!

Ég verð samt að hrósa kappanum í myndbandinu fyrir alveg einstaklega ömurlegan leikstíl, það er mér til efs að það sé hægt að spila leikinn jafn illa og hann gerir.

Double Dragon 2 var dásamlegur, en double dragon 3 var ÖMURLEGUR, algerlega óspilandi og þvílíkt erfiður að það komst enginn eðlilegur maður upp úr fyrsta borði. Ég leitaði og ég fann, og þetta er dásamlegt. Horfið á þetta myndband, þessi maður er nýi besti vinur minn! :D

Síðan fór ég að velta því fyrir mér hvaða leiki ég spilaði eiginlega á nintendo, eða family game eins og við kölluðum tölvuna.

Það spiluðu náttúrulega allir mario bros 1-100 og það er öllum drullusama um þá leiki í dag! En einn af leikjunum sem við spiluðum og örugglega enginn veit hvað er var leikur sem heitir Jackal og gengur út á að aka um á herbíl og sprengja allt í tætlur! Illa elgpeggaður leikur eins og einhver kynni að orða það!

Síðan var leikur sem enn og aftur veit hvað heitir! Ég vissi það eiginlega ekki sjálfur fyrr en bara nýlega því allt sem stóð á leiknum var á einhverju asíuletri og því hafði ég ekki hugmynd um hvað hann hét! En hann heitir semsagt að því er ég hef fundið út, Jackie Chan!

Klárlega dásamlegur leikur svo ekki sé meira sagt!

Ég get þó ómögulega munað eftir fleiri leikjum! Klárlega að þessir voru bestir, eða verstir … eða allaveganna eftirminnilegastir!

Eitt svar to “Nes Snes og BLES!”

  1. [...] þá sem eiga það eftir þá bendi ég á færsluna Nes, snes og bles sem [...]

Skildu eftir athugasemd