Kirkja hins heilaga Saab! » Draumórar

Ronskie Paulus!
Eitt merki þess að Bandaríkjamenn séu ekkert allt of skýrir í kollinum er sú staðreynd að Ron Paul er ekki verðandi forseti.

<object width="640" height="505"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/RYHC7ckpbZo&hl=en&fs=1&rel=0"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/RYHC7ckpbZo&hl=en&fs=1&rel=0" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="640" height="505"></embed></object>

Hefði ég sett texta hérna, þá hefði enginn nennt að lesa hann …

Bókin hans Grogga!
Nú þegar skjár einn er að fara á hausinn liggur beinast við að velta því fyrir sér hvernig hægt sé að bæta sjónvarpsdagskrá Ríkisútvarpsins, gera hana skemmtilegri þ.e!

Nú það liggur beinast við að minnst tveimur þáttum verði breytt, Kiljan verður lögð niður enda er þar á ferðinni alveg óstjórnlega LEIÐINLEGUR þáttur um bækur. Fólk er almennt ekki að skilja hugmyndina á bakvið sjónvarp ef að það heldur að það að hópa saman einhverjum fitubollum til að ræða um leiðinlegar bækur sé eitthvað sem þurfi að mynda og sjónvarpa. Svona lagað á í versta falli heima í útvarpi eða á bloggi, aldei í sjónvarpi.

Hinn þátturinn er síðan þáttur sem hefur verið á skjánum í hartnær áratug en hefur ekkert breyst utan þess að þáttastjórnandinn er orðinn svo feitur að hann er staðinn upp úr stólnum og sestur bakvið skrifborð. Þátturinn er að sjálfsögðu Silfur Egils. Í stað Egils Helgasonar yrði poppstjarnan Egill Einarson sem við flest þekkjum sem Gillzenegger, Grétar kallar hann reyndar persónulegu hetjuna sína, en það er annað mál!

Nú vilja margir kannski meina að Gillz viti ekkert um stjórnmál. En það er bara meginskyssa að halda það að menn þurfi að vera sjálfskipaðir sérfræðingar í stjórnmálum til að geta stýrt kjaftaþætti. Það eina sem þarf til að gera vondan þátt góðan er að vera ekki hræddur við að segja hluti sem allir hugsa en enginn nennir að segja, og svona 100 reiðar rjómatertukerlingar í vesturbænum.

Aðdáendur Egils Helgasonar ættu þó ekki að gráta því hann er ekki horfinn af skjánum heldur verður hann í tveimur nýjum þáttum. Annarsvegar þáttunum í kjólinn fyrir jólin þar sem Benni Ólsari mun hafa veg og vanda af því að reka þjóðþekkta einstaklinga ,sem eflaust hafa leyft sér aðeins of margar rjómatertur um ævina, í þrusufantaform.

Þátturinn verður með því sniði að í hverjum þætti fá þessir rjómatertuelskandi en þjóðþekktu einstaklingar eitthvað prógram sem þeir eiga að fylgja( t.d. 1000 armbeygjur og magaæfingar) og ef þeir standa ekki við sitt þá mætir Ólsarinn bara á staðinn og rukkar þá um það sem þeir skulda! Verður ekki öllu betra.

Hinn þátturinn sem Egill mun taka þátt í hefur ekki fengið nafn ennþá en þar munu þjóðþekktir ofvitar sameinast um það að læra að tala íslensku! Í fyrsta þættinum verður þeim til að mynda kennt að nota orðið væðing í staðinn fyrir slettuna sering sbr. glóbalísering og ameríkanísering.

Kreppuráð
Einhverjir virðast lifa í þeirri lygi að á Íslandi sé ekki góðæri heldur eitthvað sem kallast kreppa. Slíku fólki þýðir ekkert að benda á staðreyndir og því verður það ekki reynt hér. Þess í stað verða gefin nokkur góð kreppuráð, ráð í kreppunni semsagt!

Eins og allir vita þá er óhæfustu starfsmönnunum sagt upp fyrst þegar að þrengir og því eru allar líkur á því að menn séu að misskilja það að kerlingin hafi verið rekin sem boð um að það sé kreppa. Því fer þó fjarri, líklegra er að konan hafi verið sett í starfsmat, en nóg um það!

Þar sem kerlingin hangir heima og aflar heimilinu engra tekna, en er þeim mun duglegri í að SÓA þeim þá þarf að setja henni stólinn fyrir dyrnar, stoppa þetta af, ég tala nú ekki um ef að það er dóttir á heimilinu sem sér móðurina haga sér með þessum hætti þá sér hver maður að þarna stefnir allt til glötunar í uppeldinu.

Það var einhver umfjöllun um það í blaðinu um daginn að opna sharía-banka, sem væru voðalega sniðugir þar sem þeir innheimta enga vexti þar sem það er bannað skv. sharíalögum eða eitthvað. En það eru bara vælandi kerlingar sem halda að það sé ekki hægt að kaupa neitt nema með láni sem hugsa um einhverja þannig vitleysu!

En svarið felst virkilega í sharíalögunum, klæddu kerlinguna þína í búrku! Klipptu á öll kortin hennar, taktu af henni bíllyklana og gemsann. Gerðu heiminum greiða og lokaðu nettengingunni hennar svo að hún hætti nú að blogga á moggablogginu eða haga sér eins og fífl á facebook á þinn kostnað! Bara einfaldlega skerðu niður öll óþörf útgjöld heimilisins! Ef að konan þarf að fara eitthvað þá fer getur hún bara hjólað í búðina í búrkunni sinni.

Segðu svo upp stöð 2, því ekki viltu að hún hangi heima í búrkunni og horfi á Opruh allan daginn! Hún getur bara lesið bækur eða eithvað, en ekki kaupa bækur, það er kreppa og þú átt að spara. Láttu hana samt ekki lesa neinar hórubækur, passaðu þig á því að velja rétt lesefni handa konunni þinni! Allt sem heitir “rauða …” er bannað, nema kennski leitin að rauða október!

Það er líka drulluhagkvæmt að klæða hana í búrku. Búrkur eru ódýrar, þú getur nánast búið þær til sjálfur bara úr einhverjum strigapoka og hún þarf ekki einu sinni að vera þægileg, það venst fljótt. Svo saumarðu aðra eins á dóttir þína, nema bara minni og sparar þér milljónir í fatakaup. Svo selurðu fötin þeirra og græðir milljónir!

Það er líka mikilvægt að sharíalögin nái fyrir dótturina eða dæturnar líka. Í fyrsta lagi þá spararðu þér hellingspening í að þurfa ekki kaupa föt eða glingur á þær. Í öðru lagi spararðu þér milljónir á því að þurfa ekki að ferma þær, þar sem þið eruð jú múslimar og múslimar fermast ekki! Og í þriðja lagi þú sparar þér endalaus fjárútlát af því að hún verði nú ólétt 15 ára sem er augljóslega ekki að fara að gerast þar sem að allir strákarnir í kringum hana halda að það sé bara einhver skessa undir búrkunni. Hafðu samt engar áhyggjur af því að hún gangi ekki út, jafnvel þó hún fitni alveg rosalega undir búrkunni. Það eru nefnilega alltaf til feitir gröfukarlar sem þú getur sannfært um að taka við dóttur þinni!

Kosturinn við þetta er líka sá að ef þú færð ógeð á konunni þinni þá þarftu ekki að skilja við hana, sem er rándýrt helvíti þar sem konan fær yfirleitt meira en hún á skilið, þú færð þér bara aðra konu eins og kveður á í sharíalögunum. Konu sem þú elskar í fyrstu … eða að eilífu það er á þína ábyrgð. En á meðan þið lifið hamingjusöm saman þá eruð þið með þessa líka fínu þvottakerlingu og uppvaskara sem þarf bara að gefa að éta öðru hvoru!

Erking morða!
Íslenskan er frábært mál sem enginn ætti að klæmast á! Við höfum undanfarna öld verið misdugleg við að þýða erlend hugtök og sumir misduglegir við að laga sig að hugtökunum og koma þeim í rétta notkun.

En það er einföld ástæða fyrir því, hér er engin íslenskulögga sem hefur þeim tilgangi að gegna að halda uppi réttu málfari, stafsetningu og málfræði. EN það kemur vonandi til með breytast daginn sem Steingrímur Joð verður forsætisráðherra, ég vænti þess að íslenskulögreglan verði undirdeild í netlöggunni!

Til þess að íslenskulöggan fái nú virkað sem skyldi þarf hún að hafa rýmlegar heimildir og lögin þurfa að vera ströng, til dæmis skal þýða öll erlend vörumerki sem á annað borð er hægt að þýða, jafnvel allt bara, en það er annað mál!

En ég ætla aðeins að velta fyrir mér hvernig þessar þýðingar gætu verið. Ýmsir gosdrykkir myndu fá alveg nýtt eðli við þessar þýðingar.

Ýmsar afurðir hjá hinu “illa” Coca Cola fyrirtæki yrðu ansi skemmtilegar. Diet Coke yrði annað hvort mataræðis-kók eða kúr-kók. Mér finnst kúr-kók skemmtilegra þar sem diet=kúr hefur sterkari tilvísun í heimskuna sem þeir sem drekka diet gos þjást af.

Eða ef Kúr-kók er ekki lengur til þá koma nöfn eins og Létt-Kók eða Kók-létt upp í huga manns!

Hin þroskahefta nýja afurð hinna illu yrði þá Núll-kók eða kók-núll, og það sama gilti um sprite sem yrði þá andi eða draugur og núll-andi, draug-andi eða anda-núll, drauga-núll, einstaklega þjált í munni og fallegt!

Fanta yrði frjálst. Frítt-fanta eða fanta-frítt. Frjálst-fanta, fanta-frjálst.

Nú svo er hið góða fyrirtæki Pepsi sem er með nokkrar afurðir eins og t.d. Pepsi max sem yrði þá Hámarks Pepsi eða Pepsi hámark, mountain dew yrði fjalladögg og 7up yrði 7upp!

Orkudrykkirnir fengju frábæra þýðingu, töfrar, bruni, sértrú eða sértrúaðarsöfnuður

Ekki úr mínum reynsluheimi!
Ljótt fólk er stór iðnaður, svona ekki ósvipað iðnaðinum sem snýr að fallegu fólki, nema bara ljótari.

Það er þó ekki heyglum hent að starfa í þeim iðnaði vegna þess hversu mikið álag fylgir því að vera ljótur í samfélaginu! Ljótt fólk er hunsað og það í stórum stíl!

Ljóta fólkið glímir við þann vanda að sama hversu vel það reynir þá nennir enginn að hlusta á það né taka það alvarlega. Sem leiðir til þess að það verður gramt, önugt og/eða reitt og gleðin að innanverðu hverfur, og eins og allir vita þá kemur fegurðin að innan, og ljóta fólkið verður ljótara og ljótara og ljótara!

Sumt ljótt fólk er svo leiðinlegt að það alveg drepur mann og það lifir í þeirri villutrú að það þrátt fyrir að það hafi eitthvað fram að færa að einhver nenni að hlusta á það eða taka mark á því. NEI! Því miður heldur þetta lið áfram að nöldra og nöldra og nöldra og nöldra, í það minnsta er það hvorki að segja neitt gáfulegt eða mikilvægt! Hérna er ekki á ferðinni neinir fordómar gagnvart ljótu fólki heldur bara almenn þreyta á þessu helvítis tillitsleysi sem ljótt fólk sýnir umheiminum með því að opna á sér munninn.

Til dæmis eru stofnanir hér á Íslandi sem eru uppfullar af ljótu fólki sem nöldra og nöldra og nöldra og nöldra þrátt fyrir að gera sér grein fyrir því að enginn nennir að hlusta á það! Ein þessara stofnana er Alþingi! Þar er urmull af ljótu fólki sem einhverra hluta vegna lifir í þeirri villutrú að það að standa í púlti valdi því að fólk horfi framhjá því hversu ljótur viðkomandi er og fari að taka hann alvarlega!

Ekki nóg með það að heldur ákváðu einhverjir þessara ljótu einstaklinga einhvern tímann að fátt hæfði þjóðinni minna en að þurfa reglulega að berja þessa forljótu einstaklinga augum, svona rétt á meðan þeir þyldu upp sína hundleiðinlegu ræður. Kannski lifðu þeir í þeirri villutrú að í púltinu væru þeir fallegir! Þennan ógjörning ákváðu þeir að nefna eldhúsdasgsumræður!

Svo eru þeir sem ekki auðnast það að ná inn á Alþingi og stofnar samtök sem hafa það eitt að markmiði að koma á framfæri einhverju leiðinlegu, mögulega gæti markmið þessa fólks verið eitthvað göfugt en vegna þess hversu leiðinlegt það er nennir enginn að hlusta á það, hvað þá horfa á það!

Einn frægasti þessara hópa er nærri einvörðungu skipaður konum sem hafa fátt sem ekkert skemmtilegt til málanna að leggja, eða eru svo ljótar að hafi þær eitthvað gáfulegt til málanna að leggja nennir enginn að hlusta á það, er hópur sem kallar sjálfan sig ,einhverra hluta vegna, Feminista, svona eins og það að þetta séu konur dragi eitthvað úr því hvað þær eru ljótar.

Hver kannast t.a.m. ekki við það ömurlega leiðinlega nöldur að það vanti allar konur í fjölmiðla. Þetta er náttúrulega bara kjaftæði, í sumum fjölmiðlum eru bara konur ,eins og t.d. Playboy og Hustler, og í sumum bara karlar, eins og mogganum og Viðskiptablaðinu, þannig að þetta jafnar sig út og er í heildina nokkuð jafnt.

En fyrir utan það þá er það bara alheimsöryggismál að hleypa ekki allt of mörgum konum í sjónvarp á kjörtíma því þá verður svo erfitt að sigta feministana í burtu og eins og þetta lið er ljótt þá liggur geðheilsa fólks við því að þurfa að berja þessa ljótu einstaklinga augum, nú eða þá bara sjónvarpstækin sjálf. Ímyndið ykkur að geta ekki kveikt á tækinu án þess að eiga það á hættu að það myndi springa. Ímyndið ykkur að kveikja á sjónvarpinu á sunnudegi og í Silfri Egils væru 8 forljótir og hundleiðinlegir feministar, og segjum að sjónvarpið myndi ekki springa, augun í manni myndu brenna eða sálin stikna eða bara … ef að ég þyrfti að kveikja á silfri egils og það væru 8 forljótir feministar að æla og væla þá yrði ég brjálaður, þó svo að eldhúsdagsumræður séu reglulega þá eru þær að minnsta kosti AUGLÝSTAR með fyrirvara þannig að maður getur bjargað lífi sínu og sleppt því að horfa á þetta! Ímyndum okkur svo að hvorki sjónvarpið eða augun myndu skemmast þá er það augljósa eftir, það nennir enginn að horfa á ljótt og leiðinlegt fólk! Það er ástæða fyrir því að ljótt og leiðinlegt fólk kemur ekki fram í spjallþáttum og það er vegna þess að stjórnendurnir hafa það að markmiði að auka áhorf en ekki hvetja til þess að fólk slökkvi á sjónvarpinu og fari út að labba!

Bullfræði
Ég er að spá í því að kalla sjálfan mig og alla aðra, guðfræðinga. Ástæðan er einföld, guðfræði snýst um það að spá í einhverri tilvist einhverrar skáldsagnapersónu sem ber nöfn eins og Jahve og Guð, auk annarra nafna er ég viss um, og eitthvað lið eyðir 3 árum(eða meira) í það að lesa skáldsögur um þessa persónu og að því loknu fer þetta lið í einhver hús sem kölluð eru kirkjur og predikar yfir einhverju liði sem greinilega hefur tekið þessa skáldsögu of alvarlega.

Verst er þó að samfélagið allt tekur þessa skáldsagnapersónu of alvarlega, til að mynda fer flest fólk sem gengur í hjónaband, þá leið að “játa ást sína hvort á öðru” frammi fyrir þessari skáldsagnapersónu og er því leiðbeint af meintum þjónum skáldsagnapersónunnar. Ef að einhver deyr, koma þessir meintu þjónar svo og þykjast vera sérfræðingar í sorg og veita syrgjendunum “sáluhjálp” með fullvissun um að samkvæmt skáldskapnum sé hinn látni nú hjá guði, síðan kyrja þeir einhver vers yfir líkinu áður en það er grafið í jörðu.

Og vegna þess að fólk tekur þessa skáldsögu svo alvarlega er það einhverra hluta vegna sjálfsagður hlutur að ríkið greiði fyrir “þjónustu” þessara einstaklinga. Ég lýsi hér með eftir meðlimum í sértrúarsöfnuð, ég er ekki alveg viss hvaða skáldsögu við ættum að leggja til grundvallar sem “trúarrit” okkar, en mér datt í hug að Hringadróttinssaga, Harry Potter eða Stjörnustríð gæti verið áhugavert, síðan gætu líka verið til margar aðrar bækur með skemmtilegum persónum sem tilvalvið væri að trúa á. Endilega tjáið ykkur!

Hræðilegt!
Í gærkvöldi þegar að ég fór að sofa leyfði ég huganum að reika og rak hann þá niður á þessa alveg snilldarhugdettu sem ég ætlaði að deila með dyggum lesendum síðunnar, ekki það að ég hafi ekki ætlað að deila hugmyndinni með ódyggum lesendum síðunnar, bara það að allir lesendur síðunnar eru dyggir en aftur að aðalatriðinu sem var …. eitthvað með minnisleysi mitt að gera ….

Alveg rétt, man ekki niður á hvaða snilldarhugmynd ég datt í gær en, þið vitið eflaust hvaða snilld þið ætluðuð að lesa inni á þessari síðu, en ég man það engann veginn …þannig að þið neyðist til þess að hressa upp á minni mitt.

Reddum þessu!
Stjórnmálamenn eru nú allir af vilja gerðir en hversu litlu sem þeir lofa tekst þeim alltaf einhvern veginn að klúðra öllu, þannig að hvaða stjórnmálaflokk svo sem þú kýst þá stendur hann nú aldrei alveg 100% við sitt. Með fulltrúalýðræðinu erum við bara að leggja þarfir okkar í hendur einhvers fólks sem er misvel úr garði gert til þess að ráða við að leysa úr þörfum okkar.

Ég er hins vegar með alveg ótrúlega einfalda lausn á þessu öllu, slepptu því bara að kjósa og reddaðu þessu sjálfur(kvenkyns lesandinn líka)

Hérna er nokkrir málaflokkar sem eru sífellt til ama hversu vel eða illa stjórnvöld hafa staðið sig

Öldrunarmál: Ekki verða gamall, sparar þér og öðrum alveg ómældan tíma, peninga og leiðindi!

Samgöngumál: Notaðu bara þyrlu, þá skiptir engu máli hvernig stjórnvöldum tekst að klúðra samgöngum staðarins, og láttu þyrluna bara ganga fyrir vetni. Nú ef að vetnið er eitthvað dýrt í framleiðslu þá framleiðirðu það bara með köldum samruna, flóknara verður það ekki.

Heilbrigðismál: Ekki verða  veikur, hægara sagt en gert, en þetta þarf allt saman að byrja í æsku með því að lifa eins og svín og byggja upp gott ónæmiskerfi, þeir sem eru alltaf veikir eru yfirleitt bara menningarelskandi sófakommar sem hata lífið þá daga sem ekki er sól!

Umhverfismál: Við búum bara til fullt af köldum samrunaverum og þá þurfum við ekki að virkja neitt, einföld lausn og ódýr orka handa öllum.

Óraunhæft?

‘Kjafti!