Kirkja hins heilaga Saab! » Fjölmiðlarýni

Hvað er Climategate!
Já góðir lesendur, verandi í öskrandi jólaskapinu sem ég er í þá langar mig að taka saman örlítinn pistil um fyrirbæri sem nefnt hefur verið Climategate, samanber þá tísku Bandaríkjamanna að skella endingunni “gate” við öll hneyklismál að auðkenna þau, líking við Watergate.

Núna ert þú kannski lesandi góður að velta því fyrir þér hvað í fjandanum Climategate er? Þetta hefur ekki beinlínis fengið gríðarlega umfjöllun í helstu fjölmiðlum landsins þó svo því sé ekki að neita að einstaka fréttaskýringaþættir bæði í útvarpi og dagblöðum hafa fjallað um málið.

En þannig er mál með vexti að líklegast fyrri hluta Nóvember var skjali lekið á netið sem nefndist FOIA2009.zip og inniheldur tölvupóstsamskipti fjölmargra loftslagsvísindamanna sem og forritunarkóðana sem notaðir hafa verið við úrvinnslu hrágagna úr hinum ýmsustu loftslagsmælingum. Gögnin sem um ræðir voru hýst á vefþjón Climate Research Unit sem er ein virtasta loftslagsstofnunin og starfar við háskólann í East Anglia í Bretlandi. Gögnin virðast annaðhvort vera fengin við innbrot tölvuhakkara inn á netþjóninn eða þá að einhver innherji lak gögnunum.

Nafnið á skránni FOIA er skammstöfun fyrir Freedom Of Information Act sem þýðist lauslega sem upplýsingalög og vísar til þess að vísindamönnum sem stunda rannsóknir sem kostaðar eru af skattfé er að einhverju eða öllu leyti skylt að afhenda ,þeim sem fram á það fara, öll gögn sem verða til við rannsóknirnar, að því er ég best veit!

Áður en ég byrja á því að fjalla um innihald tölvupóstanna þá vil ég taka það fram að þrátt fyrir að minnst ef nokkuð í þessum tölvupóstum varpar nokkrum skugga á þá þekkingu á eðli lofthjúpsins sem loftslagsvísindamenn hafa uppgötvað undanfarin ár og áratugi. Efni tölvupóstanna er í sjálfu sér engin sönnun á einu né neinu og eru í mesta lagi vísbending um að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað, en ekki mikið meira.

En að því sögðu þá eru þeir sem sent hafa og móttekið hafa þessa tölvupósta fyrst og fremst vísindamenn sem tilheyra hópi loftslagsvísindamanna sem kosið hafa að kalla sjálfa sig “the team” . Meðal helstu afreka þessara vísindamanna eru rannsóknir þeirra á trjáhringjum og vinna þeirra í því að reikna út hitafar á jörðu einhver hundruð ár aftur í tímann út frá trjáhringjunum. Þessar rannsóknir hafa aflað þeim töluverðrar athygli og frægasta endursköpun þeirra á hitafari er liklegast hitaferill sem nefndur hefur verið hokkíkylfan.

Já, þá held ég geti byrjað á því að fjalla örlítið um þessa tölvupósta. Þeir skipta reyndar þúsundum og að því að ég best veit eru flestir ennþá að lesa sig í gegnum þá.

En sá tölvupóstur sem mesta athygli hefur fengið er tölvupóstur sem Dr. Phil Jones forstöðumaður við CRU skrifaði til 3ja kollega sinna Michael Mann, Ray Bradley og M. Hughes og ég birti hér hluta úr en tölvupóstinn má lesa í heild sinni hér. Það er lítið mál að slíta eitthvað úr samhengi kæri sig menn um það og því er mikilvægt fyrir þá sem hafa áhuga á þessu að lesa skeytin í heild sinni.

I’ve just completed Mike’s Nature trick of adding in the real temps

to each series for the last 20 years (ie from 1981 onwards) amd from

1961 for Keith’s to hide the decline.

Þarna er Phil Jones að lýsa því hvernig hann notaði aðferð(trick) Michael Manns til þess að “skeyta saman” hitafarstölum sem annarsvegar voru fengnar með trjáhringjum og hinsvegar með veðurstöðvum.

Það sem fjölmiðlungar og þáttastjórnendur hafa flestir hverjir reynt að gera að frétt er notkun hans á orðinu “trick” en það er hinsvegar ekki það sem skiptir máli í þessum texta. Allir þeir sem lagt hafa í einhverja menntaskólastærðfræði vita að til þess að leysa hinar og þessar diffranir og heildanir þá notar maður ákveðinn trikk til þess að einfalda hlutina og það er ekkert óeðlilegt við það.

Það sem er athugavert í þessum texta er frasinn “hide the decline”. Það sem þarna er átt við er að ákveðnum tímapunkti(einhverntímann á tímabilinu 1940-1960) sýna hitafarstölur sem reiknaðar eru útfrá trjáhringjum að hitastig fari lækkandi meðan að niðurstöður mælinga sýna að hitafar fari hækkandi. Þetta er augljóst vandamál. Sumir vísindamenn halda því fram að ástæða þess að hitafarstölurnar séu ólíkar eftir aðferðum sé sú að á þessu tímabili hafi trjáhringir orðið óáreiðanlegir varðandi það að sýna hitafar meðan að aðrir benda á, og mér finnst það liggja beinast við, að fyrst að aðferðirnar tvær sýna svona ólíkar tölur þá bendi það frekar til þess að trjáhringjaaðferðin sé frekar óáreiðanleg aðferð til þess meta hitafar í fyrndinni.

Þetta er þó ekki eini tölvupósturinn sem er grunsamlegur eða sýnir eitthvað misjafnt. Hinsvegar skipta grunsamlegir tölvupóstar tugum eða hundruðum og ég verð því miður að hryggja fólk og gleðja með því að ég nenni ekki að á aðfangadagskvöldi að fjalla um hvern einn og einasta grunsamlegan tölvupóst heldur ætla að fá að benda á umfjöllun Fox News um Climategate og bæti siðan við nokkrum tenglum um síður með einhverju frekara efni um Climategate.

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/xnCLQIYNYgo&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/xnCLQIYNYgo&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Ágúst Bjarnason fjallar um lekann.

Umfjöllun Loftslag.is um lekann.

Steve McIntyre sem hefur verið ötull við að fjalla um og gagnrýna tölfræðilega úrvinnslu margra loftslagsvísindamanna.

Realclimate – Síða sem er meira eða minna rekin af meðlimum “the team”

Climategatehornið hjá Anthony Watts

Að lokum óska ég þeirra lesenda sem nenna að lesa þetta gleðilegra jóla … hinum svona hálfpartinn!

Farvel skjár einn II
Jæja eins og allir dyggir lesendur mínir vita þá fjallaði ég um það fyrir nokkrum mánuðum í færslunni Farvel skjár einn, að skjár einn væri að fara að deyja … eða ég minntist á það. Og síðan hélt skjár einn áfram að lifa þvert á það sem ég hélt fram … eða minntist á! Alveg þangað til að skjár einn tilkynnti að hann ætlaði að gerast áskriftarsjónvarp og sama hversu ódýrt þetta verður þá er ekki séns í helvíti að ég borgi eina einustu krónu til að fá aðgang að öllum þessum 100 raunveruleikaþáttum sem þeir keyra dagskránna á. Og þar með er rekstrargrundvöllur stöðvarinnar hruninn, vegna þess að ég ætla ekki að versla við þá. Það gefur auga leið!

En ég ætla ekki að hlakka(mikið) yfir óförum starfsfólksins sem missir senn vinnuna og kannski húsið eða bílinn í kjölfarið vegna þess að það ræður ekki við afborganirnar. Allaveganna ekki á þessum vef! Ég mun líklegast mæta á svæðið þegar sýslumaðurinn lætur bera fólkið út úr húsum sínum … ég mun kannski dansa og syngja meðan greyið fólkið grætur úr sér augun yfir húsnæðismissinum, kannski ekki. Það kemur bara allt í ljós með tíð og tíma!

En í tilefni þess að skjár einn er að fara að deyja, þá langar mig að fjalla um nokkra þætti sem skjár einn sýndi sem voru epískir og ég er þeim þakklátur fyri að hafa sýnt þessa þætti.

Stargate SG-1: Þessir þættir voru reyndar að líða undir lok þegar að Skjár einn tók þá til sýninga og þeir entust held ég bara í að sýna 2 þáttaraðir eða minna af Stargate en það var allt í lagi, þeir sýndu Stargate og það var vel!

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/lx7Rr_G0nro&hl=en&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/lx7Rr_G0nro&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

The Dead zone: Algerlega vanmetnir þættir. Þvílíkt eitraðir epískir þættir sem hertóku mann, svo góðir voru þeir! Anthony Michael Hall fór náttúrulega á kostum sem Johnny Smith og Sean Patrick Flanery var eitraður sem drullusokkurinn Greg Stilson. Seríur 1-5 voru eitraðar en eftir ótrúlega gott flug í fyrstu 5 þá skeit þátturinn á sig í 6. þáttaröð og var aflýst í kjölfarið líklega. Allavega þá lauk sögunni ekki, en skjár einn fær engu að síður prik fyrir að hafa tekið þáttinn til sýninga.

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/qAFN8M4yBrY&hl=en&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/qAFN8M4yBrY&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Battlestar Galactica: Þeir sem hafa ekki séð Battlestar Galactica eru að missa af meira en miklu. Þessir þættir hafa verið ,ef mig misminnir ekki, það besta í vísindaskáldskaparheiminum. Nú og ef mig misminnir þá skiptir það ekki máli. Ég kalla þá bara þá bestu. Fyrir þá sem ekkert vita þá fjalla þættirnir um þjóð sem býr á plánetunni Caprica. Þangað til dag einn að vélmennaþjóðin Cylon ræðst á plánetuna og í grundvallaratriðum sprengja allt í tætlur og þeir sem eftir lifa neyðast til þess að flýja!

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/hvYVR6XXsHA&hl=en&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/hvYVR6XXsHA&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Og hvað meira Bjarni? Bara ekkert held ég! Ég man ekki eftir neinum þætti sem ég er virkilega þakklátur Skjá einum fyrir að hafa sýnt. Ég reyndi og ég mundi eftir 3 þáttum!

Meðvirkni fjölmiðla!
Í dag ,líkt og marga aðra daga, var ég eitthvað í sakleysi mínu að fletta í gegnum fjölmiðlungavefina og , enn og aftur í mínu mesta sakleysi, missti saur af undrun! DV er orðinn meðvirkur fjölmiðill. Meðvirkur í aumingjaskap.

“ELSKAR AÐ VERA FYRIRMYND ÞRÝSTINNA KVENNA” ??

Bíddu ha? Eru fitubollur þá skyndilega farnar að sækja styrk sinn til Kelly Clarkson af því að hún er fyrirmynd? “Ó drottinn veittu mér styrk til að klára þennan Doritos poka – ein og óstudd !!!” Eða er þetta kannski bara nýtt slangur yfir feitar stjörnur – Fyrirmynd þrýstinna kvenna …! Hvaða bull er það samt, það sjá allir að hún er ekkert þrýstin?  Hún er FEIT!!!  Þið vitið, þið lánið henni baðvogina ykkar og hún kemur til baka föst í 300 … FEIT!

En þetta er því miður slæmt dæmi um það hvað getur gerst þegar að meðvirknin fer að hreiðra um sig á fjölmiðlunum. Í áraraðir hafa hagsmunasamtök offitusjúkra kvenna grenjað yfir því að birtar séu myndir af konum sem eru í kjörþyngd og haldið því fram að með því sé verið að halda óraunsæjum kröfum að shamú og félögum og krafist þess af fjölmiðlum að þeir sýni þeim skilning sem halda að Dorritos sé eitthvað sem sé morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur að ógleymdu millimáltíðunum!

En er það ekki bara fullkomlega eðlilegt að aumingjaskapur sé útmálaður sem aumingjaskapur. Það er ekki hlutverk fjölmiðla að blessa aumingjaskap eða afleiðingar hans. Það þykir til að mynda eðlilegt að horfa á áfengisfíkn í réttu ljósi. Ekki heyrum við frá samtökum alkóhólista um að það sé alltaf verið að mála ranga mynd af alkóhólistum og að tilvera þeirra í fjölmiðlum sem ekki eru aumingjar setji alkóhólistum óraunhæfar kröfur bla bla bla … NEI! Alkóhólistar hafa vit á því að halda kjafti!

Félag offitusjúkra kvenna stendur t.d. fyrir megrunarlausa deginum, en þann dag losa þær um öll lífstykkin og leyfa spikinu að vella út, allt í nafni þess að fólk sem er ekki aumingjar setji offitusjúklingum óraunhæfar kröfur.  Myndi einhverjum finnast það skynsamlegt að halda “edrúlausa daginn” þar sem formaður félags alkóhólista myndi mæta í fréttir og segja öllum alkóhólistunum að skrúfa nú tappann af bokkunni … “skellum í okkur” og svo færi hann að básúna um þær óraunhæfu kröfur sem þjóðfélagið setti þeim um að vera edrú? Nei! Alkóhólistar hafa vit á því að halda kjafti!

Og spyrjum okkur að því. Er það eitthvað óraunhæf krafa að konur haldi sér í kjörþyngd? Gengur líf þeirra út á eitthvað fleira en að sinna þörfum eiginmanns síns og ala honum börn? Hafa þær ekki nægan frítíma milli þess sem þær sinna skyldum sínum til þess að halda sér í kjörþyngd? Jú? Sagðirðu jú? Hugsaðirðu jú eða sagðirðu kannski HELL YEAH? Það skiptir ekki máli hvað þú sagðir eða hugsaðir. Kannski sagðirðu eða hugsaðirðu “OJ þú ert ógeð, hvernig geturðu sagt þetta?” og ef svo er þá skiptir það enn minna máli. Það sem mestu máli skiptir er að það var ekki ég sem sagði þetta. Guð sagði þetta og það stendur í biblíunni!

Til hamingju hálfvitar!
Það er ekki annað hægt en á degi sem þessum að óska hálfvitum til hamingju. Til hamingju með að vera heimskir vælandi hálfvitar sem eyðileggið allt sem þið komið nálægt með væli, af því að þið eruð hálfvitar!

Eins og alþjóð veit þá er búið að troða niður hraðahindrunum í gilið, og eins og dyggir lesendur vita þá eru hraðahindranir ekki hraðahindranir heldur minnisvarðar um heimsku þeirra sem þeim planta niður í hvívetna.

Rétt í þessu var ég að lesa frétt á hinum elghressa vef Akureyri.net með fyrirsögninni “Hraðahindrunum vel tekið”. HVER? HVER? HVER? HVAÐA HELVÍTIS HÁLFVITI, tekur þessum helvítis hraðahindrunum vel? Gerðu starfsmenn Akureyrarbæjar könnun? Hringdu þeir kannski á elliheimilið eða á sambýli fyrir þroskahefta? Hvaða helvítis hálfvitar eru þeir sem tóku þessum hraðahindrunum vel?

“Hraðahindranirnar, sem eru færanlegar, var komið fyrir í Gilinu fyrir Bíladaga, meðal annars til að bregðast við kvörtunum íbúa í götunni, en mikill hávaði er oft af bílum og mótorhjólum sem þeysa upp gilið með inngjöfina í botni.”

Skv. Ja.is þá búa rúmlega 10 manns í Kaupangsstræti og það mætti ætla að þeir væru allir þroskaheftir.

Í fyrsta lagi þá er Gilið umferðargata og fólk sem býr upp við umferðargötur verður bara að sætta sig við það að þar verður oft hávaðasamt. Það þýðir ekkert að fara og væla, þið getið bara drullast til þess að flytja í burtu. Þið hafið  engan rétt á því að fara að væla og kvarta, þið getið hinsvegar og eigið að halda kjafti eða drullast til þess að flytja í burtu. Séuð þið þessu ósammála þá er það ekki vegna þess að þetta sé rangt, heldur vegna þess að þið eruð heimsk!

Í öðru lagi, þá er Gilið, og haldið ykkur nú því mörgum ykkar mun bregða við þessa uppljóstrun mína, BREKKA og þegar ekið er upp brekkur, sérstaklega þegar að búið er að planta hraðahindrun neðst í brekkunni þá neyðast ökumenn til þess að gefa bílnum “örlítið” inn til þess að komast upp brekkuna, aukinni inngjöf fylgir oft meiri hávaði … eða alltaf og sé fólk ósátt við það þá getur það bara drullast til þess að byrja að skera sig. Heimurinn er ekki staður fyrir ykkur að lifa í. Áður en þessar hraðahindranir komu var hávaðinn í Gilinu nokkurn veginn svona VRÚÚÚÚM og hávaðinn í umferðinni á leiðinni niður var kannski hviisss en í dag er hávaðinn nokkurn veginn VRÚÚÚM – SKREEEK – KLANG – VRÚÚÚM – SKREEEK – KLANG – VRÚÚÚM . Klárlega miklu hljóðlátar … hálfvitar!

Í þriðja lagi þá eru þessar hraðahindranir svo yfirmáta þroskaheftar að það er ekki hægt að keyra yfir þær. Þú keyrir að þeim, stöðvar alveg og lætur bílinn síðan renna löturhægt yfir hraðahindrunina til þess eins að heyra hraðahindrunina murrka lífið úr bílnum þínum.  Gott mál, ef þú ert hálfviti … sem því miður íbúar Gilsins virðast vera.

Í fjórða lagi … þá langar mig einstaklega mikið að sjá hvert umferðin sem á leið upp eða niður Gilið á að fara ef Gilinu verður breytt í einstefnugötu. En það er líklegast ekki búið að hugsa fyrir því, enda skipulagsyfirvöld einkar heimskt batterý *hóst* Naustahverfi *hóst*

Það væri einkar gaman að fá gröfukappann Bjössa húsbrjót norður til þess að koma hingað til þess að rífa upp þessar helvítis hraðahindranir, ég myndi jafnvel mæta á svæðið. Ég myndi svo sem ekkert gráta það að hann missti óvart gröfuarminn í húsin hjá fávitunum sem halda að þeir geti bara mætt á svæðið og lagað svæðið að sér.

Annað sem hægt er að gera er að keyra bara með flautuna í botni upp Gilið, sama hversu hægt eða hratt menn fara. Einnig er tilvalið að míga inn um bréfalúgur hjá öllum sem þarna búa eða bara losa sig við rusl inn um bréfalúgurnar. Góð leið og skemmtileg er að kúka í plastpoka og tæma síðan plastpokana inn um bréfalúgurnar, einnig má smyrja hægðunum á síður dagblaða og troða síðan dagblöðunum inn um bréfalúgurnar.

Hvernig er það annars, er engin grúppa á smettaskruddunni gegn þessum viðbjóði?

Hahaha fávitar!
Og Steingrímur J. Sigfússon kemst athugasemdalaust upp með að fullyrða í fréttum að peningarnir komi ekki frá skattgreiðendum því þeir komi frá opinberum stofnunum, eins og atvinnuleysistryggingasjóði og Íbúðarlánasjóði. Ætli íslenskir fréttamenn séu bara almennt hættir störfum? Hvaðan ætli þessar opinberu stofnanir fái peninga sína? Bara með vindinum? Og ef þessir peningar voru til og lágu undir skemmdum hjá ríkinu, af hverju voru skattar þá ekki lækkaðir svo fyrirtæki og einstaklingar hefðu úr meiru að spila þegar staða beggja er tvísýn?

www.andriki.is

Hahahaha, Andriki hafa svo verið að fara á kostum undanfarna daga og þessi pistill nær nýjum hæðum í gleði og snilld!

Eruð þið svöng?
Starfsfólk fréttastofu stöðvar 2 virðist einhverra hluta vegna halda það að myndskeið af þeim að snæða eða drekka mat sé eitthvað sem annars vegar hafi vægi í fréttaumfjöllun og hinsvegar sé eitthvað sem fólk hafi almennan áhuga á því að sjá!

Svo er ekki!

Fyrri fréttin var hluti af fréttaumfjöllun fréttastofunnar um lögleiðingu bjórs fyrir 20 árum. Einhverra hluta vegna taldi fréttamaðurinn það stórkostlega góða hugmynd að myndskeið af honum að drekka svonefnt bjórlíki. Svo var ekki! Tilgangur þess að sýna þetta öfgaþroskahefta myndskeið var það að komast að því hvort bragðaðist nú betur bjór eða bjórlíki! Ég að sjálfsögðu gekk að sjónvarpstækinu og lagði tunguna upp að skjánum til að finna bragðið af bjórlíkinu, af því að maður getur fundið bragð þannig, og ótrúlegt en satt þá bragðaðist bjórlíkið illa!

Heyrðu nei, ég gerði þetta nú ekki og maður finnur ekki bragði með því að sleikja sjónvarpið en mér finnst bara nokkuð rökrétt að bjór bragðist betur en bjórlíki. Ef bjórlíki bragðaðist betur þá gerði fólk væntanlega lítið annað en að panta þetta á barnum! Svo er ekki! Og í ljósi þess að svo er þá var gersamlega algerlega tilgangslaust af fréttamanni … ég meina starfsmanni fréttastofunnar að fá sér bjór á barnum, eða allt svo mér er skítsama þó starfsmenn fréttastofunnar séu blindfullir alltaf, gæði fréttanna gætu ekki minnkað, en að þeir séu að taka myndir af sér á fylleríum og kalli það fréttir er náttúrulega bara bull!

Hin fréttin var svo um það að einhver grísavöðvi hefði rýrnað við steikingu hjá einhverri húsmóður í vesturbænum eða eitthvað álíka! Húsmóðirin tók sig víst til og gleymdi sér í rjómatertunum meðan að hún hlustaði á Sigga Hlö á Bylgjunni og þegar að hún kom aftur þá var steikin víst horfin að mestu.Framleiðandinn hélt því fram að húsfrúin hefði ofeldað kjötið!

Nú ákvað fréttastofan að taka sig til og endurtaka eldamennskuna og sjá hvort að kjötið væri svona drýgt af vökva eða hvort húsfrúin hefði nú kannski gleymt sér yfir rjómatertunum og tóku þeir sig saman og nurluðu saman örfáum krónum til að kaupa grísavöðva og svo fóru þeir og heimsóttu Úlfar á 3 frökkum og fengu hann til að elda fyrir sig kjötið!

Þvílík og önnur eins fréttamennska hefur nú sjaldan eða aldrei sést og ekki versnaði það þegar að Lóa Pind Aldísardóttir tók sig nú til og smakkaði kjötið. Því það kom jú efni fréttarinnar á við á allan hátt hvort kjötið bragðaðist vel eða illa!

Ótrúlegt en satt þá hef ég svona álíka mikinn áhuga á því að sjá Lóu Pind Aldísardóttir borða kjöt og ég hef á því að heyra hana tala með rassgatinu, sem ótrúlegt en satt er enginn!

En hver var niðurstaða starfsfólks fréttastofunnar úr þessari meintu rannsókn sinni, jú jú hún var engin! Það væri jú til of mikils mælst að starfsfólkið á fréttastofunni ætlar að komast að því hvort að offitusjúk rjómatertuóð bylgjumamma í vesturbænum gleymdi matseldinni ,meðan að hún tróð fingrunum á sér ofan í kok inni á salerni, þá er ekki nóg að kaupa kjöt og láta einhvern kokk elda það til þess eins að komast að því að kjöt rýrnar við steikingu!

Ef maður gerði kröfur til fréttast0funnar þá væntanlega ætlaðist maður til þess að þegar að þeir leggðust í rannsóknarblaðamennsku þá væri lágmark að þeir drulluðust til þess kanna í það minnsta hvað þarf til til að kjöt rýrni um helming. Það er ekki nóg að fá einhvern kokk til að léttsteikja kjötið og borða það síðan og kalla það frétt! ÞAÐ ER EKKI NÓG, HÁLFVITAR!

Grettu vetur!
Varð þess heiðurs aðnjótandi, eða allt svo ekki, að þessir indælis Ísfirðingar sem ég bý með tóku upp á því að neyða mann til að horfa á gettu betur á laugardagskvöldið( maður tekur svona til orða, ekki eins og ég hefði ekki getað verið inni í herbergi bara að fróa mér). Og þvílík hörmung sem það var.

Fyrir það fyrsta var spyrillinn hún Eva María bara léleg! Las hraðaspurningarnar bara illa og gott ef hún las ekki bara allt illa. Hún leit samt ágætlega út, það fannst Ísfirðingunum allaveganna, þetta hefði kannski verið betra ef maður hefði bara tekið hljóðið af. Konur eiga jú að sjást en ekki heyrast.

Og hitt við þessa viðureign sem var ÖMURLEGT var lið FSu. Þetta mun vera að því er ég best veit í annað skipti sem lið FSu kemst í sjónvarp, síðast þegar að liðið komst í sjónvarpið rétt drullaðist það í 10 stig, við mikil fagnaðarlæti nemenda. Núna toppuðu þeir hins vegar fyrri árangur og rétt drulluðust í 11 stig. Jei!

Lið FSu hefur ekkert í þessa keppni að gera og þeim hefði verið nær að sýna sóma sinn í því að gefa sæti sitt eftir til einhvers liðsins sem hafði eitthvað í þessa keppni að gera.

Það er nefnilega þannig að á undanförnum árum hefur RÚV verið að gera hinar ýmsustu breytingar á Gettu betur til þess eins að jafna muninn milli sterkari og veikari liðanna. T.d. hefur tíminn í hraðaspurningunum verið styttur úr 120 sek í 100 sek og eitt árið var t.d. byrjað á vísbendingaspurningunum og var einni vísbendingaspurningunni fórnað fyrir einhverja þríþraut!

Nær væri ef RÚV hefði einhvern áhuga á því að jafna muninn milli veikari og sterkari liðanna að breyta keppnisfyrirkomulaginu og í stað þess að hafa útsláttarkeppni í útvarpinu að hafa riðlakeppni. Þetta tryggir það að lið sem hafa virkilega eitthvað í þessa keppni að gera munu komast í sjónvarp og lið sem ekkert hafa í þessa keppni að gera og voru sett saman 5 mín fyrir keppnina munu að sjálfsögðu ekki komast áfram.

Ekki bara það heldur fengju liðin meiri reynslu en ella. Hvert lið fengi þess vegna að keppa 3-4 x í útvarpi, þó svo jafnvel að það tapaði öllum viðureignum. Þetta gæfi liðsmönnum meiri reynslu og myndi að mínu mati gera keppnina að öllu leyti skemmtilegri.

Ísland er í sárum eftir búálfavæðinguna!
„Í dag yfirgefur Baddi búálfur Stjórnarráðið. Við tökum við gríðarmiklum erfiðleikum, við erfum þá frá þeirri búálfavæðingu sem leikið hefur Ísland grátt. Ísland er í sárum eftir Badda Búálf,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra þegar ný ríkisstjórn Samfylkingar og VG var kynnt.

Steingrímur segir engan vafa leika á að ný ríkisstjórn marki tímamót. íslenska þjóðin standi á einum allsherjar tímamótum.

„Þetta er í fyrsta lagi alger tímamóta ríkisstjórn hvað varðar stöðu jafnréttismála[jafnstöðumála] á Íslandi eins og sést m.a á því að ég er eini karlinn hér við þetta borð. Við gleðjumst yfir því og við óskum okkur öllum til hamingju með það og íslensku þjóðinni, að ekki bara leiðir nú kona ríkisstjórn í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins, heldur eru hlutföll kynjanna algerlega jöfn[JAFNSTAÐA]. Og ég verð að segja að það er skemmtileg tilviljun fyrir mig að lenda inni í svona ríkisstjórn sem formaður í jafnréttisnefnd Evrópuráðsins,“ sagði Steingrímur.

En tímamótin eru ekki síður mikil vegna þess að í dag lýkur tæplega 18 ára valdaskeiði Sjálfstæðisflokksins á Íslandi, sagði Steingrímur.

„Þetta eru líka mikil hugmyndafræðileg tímamót. Og í dag yfirgefur Baddi Búálfur stjórnarráð Íslands. Og aðrir tímar og aðrar áherslur og annað gildismat tekur við. Við erum okkur vel meðvituð um það að við tökum við erfiðu verkefni. Við tökum við gríðarmiklum erfiðleikum í íslenskum þjóðarbúskap, íslensku atvinnulífi og hvað varðar íslenskt samfélag, heimili og alla stöðu. Við erfum þetta frá þeirri búálfavæðingu sem yfirgefur stjórnarráðið í dag og hefur leikið Ísland  grátt.

Ísland er í sárum eftir langt valdaskeið Badda búálfs,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon.

Hann sagði ríkisstjórnina rúma 80 daga til að gera allar þær ráðstafanir sem mögulegt er til að koma samfélaginu í gegnum erfiðleikana og leggja grunn að betri framtíð.

Ég tók eitt orð út úr þessari frétt á mbl.is , þið áttið ykkur væntanlega á því með því að lesa fréttina. Ef þið áttið ykkur ekki á því hvers vegna ég gerði það þá ættuð þið kannski að lesa þetta!

Það væri kannski ráð að einhver skeleggur fjölmiðlamaðurinn bæði Steingrím Joð að útskýra fyrir okkur hvar í Stjórnarráðinu þeir fundu Badda búálf og hvort það var Ögmundur sem henti honum út eða Jóhanna?

Nýtt Snæland
Já það er vægast sagt að maður sé bullandi reiður, blóðið hreinlega sýður í æðum manns. Hið nýja Ísland er ógeð. Á nýja Íslandi er semsagt ekki sýnt frá nema 7 leikjum á HM í handbolta! HVAÐ ER MÁLIÐ?

Ríkisútvarpið sem rekið er á rányrkju íslenskra stjórnvalda sér tilgang í því að sjónvarpa frá einhverjum helvítis borgarafundi þar sem saman voru komnir 1500 eða fleiri af leiðinlegustu einstaklingum þjóðarinnar að básúna moðreyk út um öll líkamsop. Ríkisútvarpið sá líka tilgang í því að skella saman einu stykki keppni í samkynhneigð og karíókí.

Ríkisútvarpið sá hinsvegar ekki tilgang í því að sjónvarpa þjóðaríþrótt Íslendinga, bestu handboltaþjóðar á jörðu, nema 7 sinnum á þriggja vikna tímabilið. Og já maður spyr aftur, hvað er málið? Var það peningaskortur, kunna þeir sem halda um stjórnartaumana hjá RÚV ekki að forgangsraða. Ef að RÚV hefur takmarkaðar tekjur þá má bara sleppa sjónvarpi á fimmtudögum og í Júlí. Eða það má sleppa febrúar og mars líka. Persónulega væri ég þó hrifnari af því að sjónvarpið sleppti þriðjudögum þar sem þriðjudagar eru einhverjir leiðinlegustu dagar í sjónvarpi sem fyrirfinnast!

Það má semsagt sleppa fullt fullt af útsendingardögum til þess að skrapa saman nægu fé til að sýna frá HM í handbolta! Ríkisútvarpið hefur lögboðið menningarhlutverk og æðsta skylda þess er að senda út atburði eins og HM og EM í handbolta og fótbolta! Það skiptir engu máli þó að fréttirnar falli niður og allir helvítis menningar og karíókíþættirnir sem RÚV hefði annars sýnt. Skiptir engu máli, og ef þú ert ósammála þá ert þú fáviti með prik uppi í rassgatinu sem ég mæli með að þú látir fjarlægja hið fyrsta!

Lastkjós Vúr
Kastljós ákvað í gærkvöldi að fjalla um hvernig fyrrverandi þingmönnum hefði vegnað að finna sér önnur störf þegar að þeir létu að þingmönnum síðastliðið vor. Ástæða þess að það var gert var til að kanna hvað væri hæft í þeirri fullyrðingu að þingmenn ættu erfitt með að finna störf á hinum almenna markaði að lokinni langri þingsetu. En sú ástæða að það kunni að reynast þeim erfitt var einmitt ein helsta röksemdin á bakvið eftirlaunafrumvarpið svokallaða!

Mér persónulega er alveg drullusama um hvort þessi lög eru við gildi eða ekki og hefði sennilega ekki velt þessari umfjöllun kastljóss fyrir mér nema það að í upphafi tók Þórhallur það sérstaklega fram að fjalla ætti um þingmenn sem létu af störfum í fyrravor. Þess vegna brá mér nokkuð þegar nafn Jóns Gunnarssonar núverandi þingmanns var nefnt!

Nú er það svo að þegar að einhver myndi segja “almennur markaður” og “vinnumarkaðurinn” þá kemur mér ekki til hugar hugtök eins og sendiherrastörf eða embættismenn. Hinn almenni markaður merkir í mínum huga einkafyrirtæki, ekki ríkisfyrirtæki. Án þess að Kastljós hafi þó sett fram einhverja skoðun þá töldu þeir bara upp alla þá þingmenn sem hafa látið af störfum frá því að lögin voru sett árið 2003.

Þá köm löng runa um einstaklinga sem sem létu af störfum og fengu embætti á vegum ríkisins eða störf á vegum stjórnmálaflokkanna. Sem er væntanlega hinn almenni markaður að mati Kastljóss … hver veit. Það merkilega er að af þeim sem fóru á hinn almenna markað fór einn til fyrri lögfræðistarfa sem hann hafði að því er ég best veit sinnt samhliða þingmennsku, ein varð háskólakennari á bifröst, einn fór í Glitni og er væntanlega ríkisstarfsmaður nú,  einn varð framkvæmdarstjóri hjá Keili, annar rak sitt eigið fyrirtæki og sá síðasti var framkvæmdarstjóri stéttarfélags!

Ég nenni nú ekki að telja þetta saman en mér sýnist sem röksemdirnar fyrir lögunum standist að mestu. Þeir sem sitja lengi á þingi fara ekki til vinnu á hinn almenna vinnumarkað og það er þá ekki helst nema fólk sé vel menntað að það fái vinnu á hinum almenna markaði að lokinni langri þingsetu!