Kirkja hins heilaga Saab! » Forvitnilegt

Radíusflugur
Þeir radíusbræður Steinn Ármann og Davíð Þór eru miklir grínarar og án þess að ég hafi hugmynd um það þá voru þeir væntanlega með einhvern útvarpsþátt á árunum 1994-1995 eða eitthvað álíka. En á þessum tíma tóku þeir grínbræður sig til og tóku upp stutta sketsa sem kallast radíusflugur. Þessar flugur eru alveg frábærar vegna þess að þær eru uppfullar af kúka og kynlífshúmor.

Ég hef því ákveðið að brjóta höfundarréttarlög og deila alveg heilum 3 flugum með lesendum eða … hlustendum.

Fyrsta flugan ber hið erna nafn “FM-klám” og fjallar um Sundi Hansen útvarpsmann á Klámstöðinni.

Næsta flugan ber heitið Skodahatari og fjallar um skýrslutökuna lögreglunnar yfir Sumarliða Vagnssyni eða Sigmari Vagnssyni, ég er ekki alveg viss … og mér er drullusama eiginlegast.

Og síðasta flugan í þessari fyrstu færslu í þónokkurn tíma ber heitið rúmsölumaður og fjallar um það ferli að kaupa sér nýtt rúm.

Fleira var það ekki að þessu sinni. Þakkir og kveðjur berist þeim grínbræðrum, en allar peningagjafir berist mér.

Hellaskoðunarfélagið Rassmus
Hellaskoðunarfélagið fór í frækna för að skoða hellana Litla-Björn, Vörðuhelli og Gjábakkahelli sem eru staðsettir í Gjábakka líklegast (svæðinu milli Þingvalla og Laugavatns)  Litli-Björn átti að vera helvíti hress hellir sem gaman væri að skoða, það tók þó nokkurn tíma að finna hellismunnann, annarsvegar þar sem gamla Magellan GPS tækið sem ég fékk í fermingargjöf 1998 virtist hafa einhverjar allt aðrar áætlanir en að virka rétt og hinsvegar þar sem hellismunninn var tiltöluega hulinn snjó. Við fundum hann þó á endanum … augljóslega!

Jayne og Jói, ekki í fókus, en komnir niður í hellinn!

Litli-Björn er mjög skemmtilegur og áhugaverður hellir að því leyti að þar er margt að sjá auk þess sem oftast er nógu hátt til veggja svo maður geti staðið uppréttur, og það gerir gönguna allmiklu skemmtilegri.

Margt áhugavert í hellinum eins og sést, sem borgar sig að skoða vel!

Hellirinn er um 300 metra langur skv. biblíunni okkar, sem er Hellahandbókin eftir Björn Hróarsson sem kom út síðustu jól!

Hann er litríkur á köflum!

Þegar 300 metrunum er lokið er út í enda komið, úr enda hellisins er tenging yfir í annan hluta vörðuhellis um þröng göng sem þarf að skríða í gegnum og er síðan um nokkur kafli í Vörðuhelli sem er frekar þröngur.

Jói byrjaður að troða sér ofan til að athuga hvort þetta séu réttu göngin!

Við vorum ekkert alveg vissir fyrst hvaða þröngu göng það væru sem tengdu hellana saman. En eftir að Jói fann mjög svo efnileg göng ákvað hann að skríða í gegnum þau og vissi þá að þetta var rétta leiðin. Hann var þó ekki alveg viss hvort Jayne kæmist í gegnum göngin þar sem Jayne er rúmir 7 metrar á hæð, eða um það bil. Því ákvaðum við að ég myndi prufa að skríða þau líka til þess að meta hvort Jayne kæmist ekki í gegn. Í gegn skreið ég og trúði ekki öðru en að Jayne kæmist þetta, auk þess vorum við svo klyfjaðir af vaselíni að það yrði þá aldrei verra en svo að við myndum bara smyrja allan hellinn að innan og troða Jayne í gegn.

Jayne að koma út úr göngunum, ekkert vaselín, í baki glittir síðan í Jóa!

Vörðuhellir var eins og áður sagði nokkuð þrengri og þar var einnig nokkuð lægra til lofts en í Litla-Birni, en þar var þó umtalsvert meira af ís.

Kallinn, ísilagður!

Vörðuhellir heitir svo vegna þess að í öðrum enda hellisins er varða ein, við vorum hins vegar í hinum hluta hellisins og þegar við komum upp úr þeim hluta þá sáum við hvergi opið yfir í hinn hlutann þar sem það var hulið þykku fargi af snjó, við ákváðum því að sleppa þeim hluta og halda beint yfir í Gjábakkahelli.

Slíkt tanaður af myrkrinu í hellinum!

Gjábakkahellir er þó töluvert auðfundnari en Litli Björn. Við veginn er hálfgert bílastæði og göngustígur að hellinum sjálfum sem er ekki algengt samkvæmt okkar reynslu að því að finna hellismunna.  Gjábakkahellir var þó öllu leiðinlegri gegnumferðar þar sem mikið vatn dropaði í gegnum þak hellisins og niður á gólfið sem olli því að undirlagið var flughált og varasamt og maður eyddi því fyrsta hluta göngunnar á fjörum fótum til þess að sporna við því að maður flygi ekki á hausinn og naut því ekki þess sem fyrir augu bar eins mikið og maður hefði viljað.

Jói klöngrast niður í hellinn á ísi lögðu grjótinu.

Hellirinn er þó ekki alónýtur því um miðbik hellisins verður hann nokkurra hæða með með “herbergi” og þar inni er gestabók.

Jói kvittar í gestabókina!

Ég var furðusposkur á meðan!

Og svo fórum við út úr hellinum, ég var augljóslega fyrstur út eins og sést á þessari mynd!

Þannig var það, síðan var brunað í bæinn undir brunandi júróbíti!

Fleiri myndir úr ferðinni eru hér!

Super maker of the sinner 2: Revenge of the fallen
Geir Ólafs endurskilgreinir hugtakið epík!

Haldið ykkur fast!

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/Hr3MnZsLXnQ&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/Hr3MnZsLXnQ&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Stóra Lemon-Tea málið!
Frá örófi alda hafa frómir karlmenn smjattað á Lemon Tea.  Lemon tea er frábært, maður hellir í lokið og étur elgsúran sykurinn úr gula lokinu. Lífið verður ekki öllu betra.

Alveg þangað til einn dag að einhver snillingurinn sem sá um að kaupa inn fyrir Haga ákvað að nú væri kominn tími til þess að spara fjölskyldum í landinu einhverjar örfáar krónur og kaupa inn fyrir það eitthvað hlyti að vera alveg sama sull og Lemon Tea, nefnilega ógeðið sem kemur í rauðbleiku umbúðunum með gula lokinu og nefnist Ice Tea.

Það er bara eitt að, ice tea er engan veginn jafn gott og Lemon tea.  Í fyrsta lagi er það eingöngu drykkjarhæft, maður borðar það ekki þurrt, til þess er það allt of væmið og ógeðslegt og í öðru lagi, þá er þetta ekki lemon tea. Þetta er ógeð.

Svona var lífið ómögulegt í nokkur ár, reyndar fékkst lemon tea á landinu en yfirleitt í dýrari verslunum. Gott Lemon Tea  var orðið munaður. Enda var þetta eiturþýskt. Framleitt af sjálfum Wilhelm Reuss í Þýskalandi.  Geri aðrir betur.

Lífið er hinsvegar ekki ómögulegt lengur þar sem hver sá sem ákvað að spara fjölskyldunum í landinu þessar fáu krónur virðist hafa lent í þeirri slæmu lífsreynslu að smakka þetta ógeð sem Ice Tea er og örugglega ælt af viðbjóði. Í kjölfarið fór hann greinilega á stúfana og leitaði uppi ódýrt drykkjarhæft og ætt Lemon Tea … og fann það.

Dömur mínar og herrar, ég kynni.

Eftirhermu Lemon Tea-ið Citrone Teegetränk (Ekta te-ið heitir Citronetee getränk).  Á ensku kallast það Lemon Tea drink (hið ekta kallast Lemon Tea mix)

Þetta te er yndislegt. Það er bæði ætt og drykkjarhæft. Maður slafrar í sig alveg heilum bauk á dag, aldrei minna.

En það er ekki ekta, enda sést það á því, og þetta er það eina sem ég finn að þessu: Kornin í te-inu byrja að molna töluvert áður en maður er kominn niður í botn. Sem gerir það að verkum að maður er varla búinn með nema 60% af teinu þegar að maður er farinn að borða duft með kornunum. Það er augljós ókostur.

Annars er þetta gott te, og það er selt allsstaðar. Bónus, Hagkaup og Melabúðinni!

Hvernig er hægt að hlusta á tölvuleikjatónlist?
Það eru allir alltaf að spyrja mann að þessu. “Bjarni hvernig get ég hlustað á nintendo tónlist? Ég elska nintendo tónlist og langað geggjað mikið að hlusta á nintendo tónlist ….  þúst omg omg omg” Og hvað get ég annað gert á stundum sem þessari að sýna fólki hvernig það getur hlustað á tölvuleikjatónlistina góðu.

Það er hægt að framkvæma þetta á 2 vegu. Í fyrsta lagi er hægt að fá sér sérstaka viðbót við tónlistarspilarann sinn … og þá meina ég winamp. Viðbótin sem ég nota heitir Notso fatso. Þessi viðbót gerir manni kleyft að spila .nsf skrár( Nintendo Sound File) þannig að þegar skráin opnuð þá birtist gluggi fyrir viðbótin þar sem hægt er að skipta milli laga í skránni.

Nú vilji menn spila einhverjar aðrar gerðir af tölvuleikjatónlist svo sem Commodore 64 tónlist eða Super nintendo tónlist þá eru líka til plugin fyrir þessar tegundir skráa. Fyrir C64 tónlistina þurfum við einhverja sid viðbót.  Sjálfur nota ég sidplay2 viðbótina en mér sýnist vera til önnur betri sem kallast Hardsid . Hardsid sýnist mér vera betri að því leyti að hún brýtur niður sid skrárnar í stök lög, eitthvað sem sidplay2 gerir ekki. Nú er auðvitað líka hægt að sækja sér bara sérstakan sid-spilara. En það er harla tilgangslaust eins og sést á eftir. Fyrir súper nintendo tónlistina er hægt að sækja sér sérstaka viðbót líka sem heitir SNESamp . Ég hef þó enga reynslu af þessu eins og sést á eftir … það sést allt á eftir.

Seinni aðferðin til þess að spila tölvuleikjatónlist er að breyta henni á mp3 skráarsnið. Þetta er augljóslega mun þægilegri leið þar sem núna er hægt að setja tónlistina á sérstaka spilara eða brenna hana á diska til að hafa í bílnum, augljóslega … þetta gera allir með viti!

Einfaldasta leiðin til þess að breyta tölvuleikjatónlist yfir í mp3 er að nota Foobar2000 spilarann. Það er þó örlítill tölvunördismi eftir. Til þess að gera Foobar kleyft að spila tölvuleikjatónlistina þurfum við að sækja til þess gerð plugin fyrir sérhverja tegund tölvuleikjaskráa, sé það nsf, spc eða sid. Foobarinn lætur ekki mikið yfir sér, en hann virkar.

Hvað þurfum við þá að gera næst? Eftir að búið er að setja upp spilarann þá þarf að sækja minnst 2 .dll skrár sem bera nafnið foo_gep.dll og foo_sid.dll . Þessar 2 skrár þarf síðan að setja í undirmöppuna components sem ætti að vera í foobar2000 möppunni. C:\Program_Files\Foobar2000\components …

Núna getur foobar spilarinn spilað nsf og sid skrárnar og að ég held spc skrárnar líka. Það næsta sem þarf er síðan codec til þess að umbreyta hinum skránum yfir í eitthvað algengara form skráarsniða. Vinsælasta skráarsniðið er væntanlega mp3, en vilji menni breyta yfir í ogg vorbis eða flac þá er það eflaust ekki mikill vandi.

Til þess að geta breytt yfir í mp3 þurfum við mp3 codec. Því næst opnum við Foobar og veljum einhverja dásamlega tónlistarskrá af handahófi t.d. Mega Man 3 og opnum hana. Þá ætti að byrja einhver dásamleg tónlist svipuð þessu lagi(nema augljóslega ekki þetta lag þar sem það er úr Mega Man 2)

Þeim næst hægri smellum við á viðkomandi lag og veljum Convert úr listanum sem þá birtist. Þá ætti okkur að birtast nýr gluggi sem líkist þessum.

Þarna þurfum við að velja output source sem mp3 eða ogg vorbis eða hvaðeina sem við viljum breyta yfir í. Og voila við erum kominn með eitt stykki frábæran umbreytir fyrir tölvuleikjatónlist. Ef við veljum mp3 þarf bara að gæta þess að stilla í forritinu hvar codec skráin er niðurkomin. Þannig ætti allt að virka slétt og fellt og engin vandamál. Að því loknu ættum við að geta farið að dæla út tölvuleikjatónlist eins og við fengjum borgað fyrir það.

En þá kemur spurningin? Hvar fær maður tölvuleikjatónlistina?

Fyrir Nintendo og Super nintendo og aðrar álíka leikjatölvur má endilega kíkja á tónlistarhornið hjá Zophar. Þar má sækja tónlistina úr stökum leikjum.

Fyrir C64 tónlistina þá má heimsækja High Voltage Sid collection síðuna. Þar má sækja allt Sid safnið, sama hvort tónlistin er úr tölvuleikjum eða bara einhver snillingur samdi hana fyrir sjálfan sig.

Því næst er bara að njóta þessara yndislegu tóna.

Hvað er Climategate!
Já góðir lesendur, verandi í öskrandi jólaskapinu sem ég er í þá langar mig að taka saman örlítinn pistil um fyrirbæri sem nefnt hefur verið Climategate, samanber þá tísku Bandaríkjamanna að skella endingunni “gate” við öll hneyklismál að auðkenna þau, líking við Watergate.

Núna ert þú kannski lesandi góður að velta því fyrir þér hvað í fjandanum Climategate er? Þetta hefur ekki beinlínis fengið gríðarlega umfjöllun í helstu fjölmiðlum landsins þó svo því sé ekki að neita að einstaka fréttaskýringaþættir bæði í útvarpi og dagblöðum hafa fjallað um málið.

En þannig er mál með vexti að líklegast fyrri hluta Nóvember var skjali lekið á netið sem nefndist FOIA2009.zip og inniheldur tölvupóstsamskipti fjölmargra loftslagsvísindamanna sem og forritunarkóðana sem notaðir hafa verið við úrvinnslu hrágagna úr hinum ýmsustu loftslagsmælingum. Gögnin sem um ræðir voru hýst á vefþjón Climate Research Unit sem er ein virtasta loftslagsstofnunin og starfar við háskólann í East Anglia í Bretlandi. Gögnin virðast annaðhvort vera fengin við innbrot tölvuhakkara inn á netþjóninn eða þá að einhver innherji lak gögnunum.

Nafnið á skránni FOIA er skammstöfun fyrir Freedom Of Information Act sem þýðist lauslega sem upplýsingalög og vísar til þess að vísindamönnum sem stunda rannsóknir sem kostaðar eru af skattfé er að einhverju eða öllu leyti skylt að afhenda ,þeim sem fram á það fara, öll gögn sem verða til við rannsóknirnar, að því er ég best veit!

Áður en ég byrja á því að fjalla um innihald tölvupóstanna þá vil ég taka það fram að þrátt fyrir að minnst ef nokkuð í þessum tölvupóstum varpar nokkrum skugga á þá þekkingu á eðli lofthjúpsins sem loftslagsvísindamenn hafa uppgötvað undanfarin ár og áratugi. Efni tölvupóstanna er í sjálfu sér engin sönnun á einu né neinu og eru í mesta lagi vísbending um að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað, en ekki mikið meira.

En að því sögðu þá eru þeir sem sent hafa og móttekið hafa þessa tölvupósta fyrst og fremst vísindamenn sem tilheyra hópi loftslagsvísindamanna sem kosið hafa að kalla sjálfa sig “the team” . Meðal helstu afreka þessara vísindamanna eru rannsóknir þeirra á trjáhringjum og vinna þeirra í því að reikna út hitafar á jörðu einhver hundruð ár aftur í tímann út frá trjáhringjunum. Þessar rannsóknir hafa aflað þeim töluverðrar athygli og frægasta endursköpun þeirra á hitafari er liklegast hitaferill sem nefndur hefur verið hokkíkylfan.

Já, þá held ég geti byrjað á því að fjalla örlítið um þessa tölvupósta. Þeir skipta reyndar þúsundum og að því að ég best veit eru flestir ennþá að lesa sig í gegnum þá.

En sá tölvupóstur sem mesta athygli hefur fengið er tölvupóstur sem Dr. Phil Jones forstöðumaður við CRU skrifaði til 3ja kollega sinna Michael Mann, Ray Bradley og M. Hughes og ég birti hér hluta úr en tölvupóstinn má lesa í heild sinni hér. Það er lítið mál að slíta eitthvað úr samhengi kæri sig menn um það og því er mikilvægt fyrir þá sem hafa áhuga á þessu að lesa skeytin í heild sinni.

I’ve just completed Mike’s Nature trick of adding in the real temps

to each series for the last 20 years (ie from 1981 onwards) amd from

1961 for Keith’s to hide the decline.

Þarna er Phil Jones að lýsa því hvernig hann notaði aðferð(trick) Michael Manns til þess að “skeyta saman” hitafarstölum sem annarsvegar voru fengnar með trjáhringjum og hinsvegar með veðurstöðvum.

Það sem fjölmiðlungar og þáttastjórnendur hafa flestir hverjir reynt að gera að frétt er notkun hans á orðinu “trick” en það er hinsvegar ekki það sem skiptir máli í þessum texta. Allir þeir sem lagt hafa í einhverja menntaskólastærðfræði vita að til þess að leysa hinar og þessar diffranir og heildanir þá notar maður ákveðinn trikk til þess að einfalda hlutina og það er ekkert óeðlilegt við það.

Það sem er athugavert í þessum texta er frasinn “hide the decline”. Það sem þarna er átt við er að ákveðnum tímapunkti(einhverntímann á tímabilinu 1940-1960) sýna hitafarstölur sem reiknaðar eru útfrá trjáhringjum að hitastig fari lækkandi meðan að niðurstöður mælinga sýna að hitafar fari hækkandi. Þetta er augljóst vandamál. Sumir vísindamenn halda því fram að ástæða þess að hitafarstölurnar séu ólíkar eftir aðferðum sé sú að á þessu tímabili hafi trjáhringir orðið óáreiðanlegir varðandi það að sýna hitafar meðan að aðrir benda á, og mér finnst það liggja beinast við, að fyrst að aðferðirnar tvær sýna svona ólíkar tölur þá bendi það frekar til þess að trjáhringjaaðferðin sé frekar óáreiðanleg aðferð til þess meta hitafar í fyrndinni.

Þetta er þó ekki eini tölvupósturinn sem er grunsamlegur eða sýnir eitthvað misjafnt. Hinsvegar skipta grunsamlegir tölvupóstar tugum eða hundruðum og ég verð því miður að hryggja fólk og gleðja með því að ég nenni ekki að á aðfangadagskvöldi að fjalla um hvern einn og einasta grunsamlegan tölvupóst heldur ætla að fá að benda á umfjöllun Fox News um Climategate og bæti siðan við nokkrum tenglum um síður með einhverju frekara efni um Climategate.

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/xnCLQIYNYgo&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/xnCLQIYNYgo&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed></object>

Ágúst Bjarnason fjallar um lekann.

Umfjöllun Loftslag.is um lekann.

Steve McIntyre sem hefur verið ötull við að fjalla um og gagnrýna tölfræðilega úrvinnslu margra loftslagsvísindamanna.

Realclimate – Síða sem er meira eða minna rekin af meðlimum “the team”

Climategatehornið hjá Anthony Watts

Að lokum óska ég þeirra lesenda sem nenna að lesa þetta gleðilegra jóla … hinum svona hálfpartinn!

Optimus Prime
Já gott fólk, í dag gerumst við nörd og fræðumst örlítið um Optimus Prime!

Optimus Prime er um margt merkilegur tappi en þó er jafnvel enn merkilegri sú nauðgun sem höfundar stunduðu á persónunni. Fyrir þau ykkar sem ekki hafa séð fyrstu Transformers þættina þá skiljið þið kannski ekki mikið, en fræðist öllu meira.

Fyrsta þáttaröðin af Transformers var sýnd 1984 í Bandaríkjunum og innihélt hún 16 þætti. Í þeim þáttum fáum við að kynnast því að Umbreytingarnir svonefndu ferðuðust frá heimaplánetu sinni Cybertron og til jarðar þar sem geimskipið þeirra hrapaði og lenti inni í einhverju fjalli og þeir voru allir í dvala í 4 milljón ár eða svo. Og þetta voru allir Umbreytingarnir, Autobots og Decepticons. Fyrsta þáttaröðin á sér meira eða minna öll stað á jörðinni og snýst fyrst og fremst um það Autobots reyna eftir fremsta megni að hindra það að Decepticons steli orku frá mönnunum eða valdi þeim öðrum skaða. Hress þáttaröð og allt það, en hlutirnir fara ekki að snúast fyrr en í annari þáttaröðinni.

Það er nefnilega svo í 2. þáttaröð þá fyrst förum við út í geim.  Við heimsækjum Cybertron og förum meira að segja út í geim. En að Optimus Prime, því hann gengur nefnilega í gegnum margt í þessari þáttaröð.

Í þættinum City of Steel er Optimus tekinn til fanga af Decepticons og meira að segja ganga þeir svo langt að taka hann í sundur. Autobots verða síðan að bjarga Prime með því að finna bútana og raða þeim saman aftur.Þátturinn nær síðan hámarki í lokabardaganum þar sem Optimus Prime þarf að klifra upp á topp á Empire State til þess að sækja annan handlegginn sinn ,sem Megatron hefur komið fyrir þar, með byssu í hendi skjótandi á allt. Alveg hreint epískur þáttur og klárlega í fyrsta skipti sem Optimus Prime er drepinn, eða hvað?

Handleggur Optimus-ar á toppi Empire State plaffandi á allt!

Í þættinum A Prime Problem er Optimus síðan tekinn úr umferð þegar honum er fleygt í “beð” svonefndra Coronium krystalla, en það eru krystallar sem gera allan rafbúnað, sem hann kemst í snertingu við, óvirkan. Megatron gerir síðan almynd af Optimus Prime og klónar hann … ó ó þá er nú fokið í flest skjól.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/5fxofUZiajk&hl=en_US&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/5fxofUZiajk&hl=en_US&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Eins og ég sagði áður þá fáum við að heimsækja Cybertron í nútíð og fortíð. Við fáum að kynnast Alpha Trion og einhverjum Autobot skvísum en gleðin er hæst í þættinum War Dawn þegar við kynnumst Orion Pax. Og hver er Orion Pax spyrjið þið? Orion Pax er Optimus Prime í fortíðinni. En hérna kemur gleðin. Til að gera langa sögu stutta þá fer það þannig að Megatron sendir Aerialbottana aftur í tímann með tæki sem hann ætlar að nota til að stela orku úr fortíðinni. Jæja gleðin er semsagt þannig að Orion Pax sem er vinnuvélmenni reynir að stoppa Megatron í því að stela orkubirgðum úr vörugeymslu en er drepinn af Megatron. Aerialbottarnir finna hinsvegar líkama hans og koma honum til Alpha Trion sem breytir honum í Optimus Prime. Þarna fæðist Optimus Prime. Nema bara það er einn örlítill galli. Ef ekki hefði verið fyrir Aerialbottana sem komu úr framtíðinni þá hefði Optimus Prime ekki orðið til. En Optimus Prime er orsök þess í framtíðinni að Aerialbots eru til … já hér er ákveðin þversögn á ferðinni og gott dæmi um það hvað handritshöfundarnir voru ekkert að missa sig yfir því hlutirnir stæðust.

Orion Pax býr sig undir að taka á Megatron

Alpha Trion

Optimus Prime, nýfæddur og strax byrjaður að plaffa niður drullusokka!

Þá gerist ekki mikið meira í sögu Optimus Prime fyrr en í myndinni Transformers the movie sem kom út 1986 og sei sei já, þá fara hlutirnar að gerast!

Transformers the movie er költ mynd. Hún sló ekki beint í gegn á sínum tíma en hún á sér dygga aðdáendur í dag. Þrátt fyrir það að þessi mynd hafi meira eða minna verið star wars í transformers-búningi þá er hún engu að síður alveg 80 mín af ágætustu skemmtun. Tónlistin er t.d. alger munaður og þar fer Stan Bush á köstum í laginu the Touch sem hljómar þegar Megatron og Optimus Prime heyja sinn síðasta bardaga sem endaði vægast sagt epískt! Í þessu má sjá Hot Rod sem síðar yrði sjálfur Rodimus Prime leiðtogi autobottana! Við kynnumst einnig tegund vélmenna sem kallast Quintessons og eru einhverjir 5 höfða drullusokkar sem hata autobotta.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/fB0_vJUc3o4&hl=en_US&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/fB0_vJUc3o4&hl=en_US&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Rétt eins og þættirnir voru lítið annað en 20 mínútna langar auglýsingar fyrir leikföngin, þá var myndin bara 80 mínútna auglýsing, sérstaklega til þess gerð að geta skipt út persónum. Það er nefnilega þannig að Optimus Prime er drepinn í myndinni og þá meina ég DREPINN.  Hann stóð ekkert upp aftur og var ekkert í næsta þætti eða neitt. Hann var drepinn og þá fóru allir  sem voru í bíó að gráta, svo einfalt var það! Fyrir áhugasama þá er hægt að horfa á meira eða minna alla myndina á youtube.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="344" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/h_ULg4RSy5Y&hl=en_US&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="344" src="http://www.youtube.com/v/h_ULg4RSy5Y&hl=en_US&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Dauði Optimus Prime var flestum vægast sagt áfall og viðtökurnar urðu meira að segja til þess að handritshöfundar G.I Joe ákváðu að breyta handritinu frá því að aðalgaurinn þar Falcon dæi yfir í það að hann færi í dá! Bara til þess að missa ekki áhorfendur eða eitthvað álíka.

Eftir Transformers the movie var komið að 3ju þáttaröðinni. Hún tók upp þráðinn þar sem myndin hætti og nú kynni fólk að spyrja sig hvers vegna ég væri að tala um 3ju þáttaröð þegar að Optimus Prime væri allur? Já, það er góð spurning! Það er áhugavert að horfa á 3ju þáttaröðina því þar er algerlega orðið ljóst að handritshöfundarnir voru bara hættir að nenna þessu. Fjöldi persóna var einfaldlega farinn út í rugl. Það komu tugir nýrra góðra og vondu karla og allir gátu þeir sameinast og myndað stærri gaura og þar fram eftir götunum. Bardagarnir eru allir meira eða minna eitt stórt lasershow og bara allsherjar rugl. Handritshöfundarnir þróuðu þó söguna örlítið. Við lærum t.d. hver uppruni Cybertron og transformerskarlanna er og hver þáttur Quintessons er í því ferli.

En af hverju er ég enn að skrifa? Jú jú Optimus Prime mætir aftur, meira að segja tvisvar sinnum. Fyrri endurkoma hans er í þættinum The Dark Awakening en þar eru Autobottarnir á flótta undan Decepticons og flýja inn í smástirnabelti og rekast á grafhýsið sem þeir smíðuðu til heiðurs félögum þeirra sem létust í hinu mikla stríði (þ.e. Transformers the movie) og hvern rekast þeir ekki á nema jú jú sjálfan Optimus Prime endurborinn. Allt er þetta liður í samsæri Quintesson-anna sem hafa vakið hann til lífsins undir því yfirskini að hann endurheimti leiðtogasæti sitt og leiði síðan alla autobottana í gildru þar sem þeim verður öllum eytt. Til að gera langa sögu stutta þá leiðir Optimus autobottana í gildruna en Rodimus nær að stöðva hann á síðustu stundu og bjarga autobottunum en Optimus ákveður að fórna sér og fljúga geimskipi sínu á einhvern hnött sem springur síðan í tætlur. Og þá skyldi maður jú ætla að hann væri STEINDAUÐUR! Síðustu myndirnar áður en allt springur í tætlur vantar hálft andlitið á hann og annar handleggurinn er dottinn af honum. Nokkuð augljóst mál að hann er dauður héldi maður. Nei nei nei í lok þess þáttar spyr þulurinn “is this really the end of Optimus Prime?”

Optimus Prime á lokastundu

Optimus Prime springur í TÆTLUR!

Þvílík gleði! Næsti þáttur heitir nefnilega því fróma nafni Return of Optimus Prime og er í tveimur hlutum! Í byrjun þess þáttar eru tveir vísindamenn ,sem eru að prufa hitaþolni einhverrar málmblöndu við hliðina á stjörnu sem er í þann mund að springa, sem finna skutluna hans Optimus Prime (sem hann flaug á hnöttinn og sprengdi í tætlur í þættinum á undan) í heilu lagi og Optimus Prime alveg heilan um borð, nema hann er dáinn. Vísindamennirnir fara síðan með Optimus Prime til jarðar. Optimus var þó ekki það eina sem þeir fundu. Þau fundu einnig einhverja spora sem gera fátt annað en að dreifa illsku. Í stuttu máli sagt komust þessir sporar í umferð og allir verða brjálaðir og þá meina ég ALLIR, autobottar, decepticon-ar, mannfólk, hundar rottur og nefnið það og allir byrja að berjast hver við annan.

Þeir fáu sem eftir eru neyðast því til að vekja Optimus Prime til lífsins, en það er einn galli. Þeir kunna það ekki og þeir einu sem kunna það eru þeir sem sköpuðu hann. Og núna hugsar þú lesandi góður, já það er auðvelt það var Alpha Trion. NEI NEI NEI NEI NEI! Láttu þig dreyma … það er ekki að fara að gerast að sögulínan sé samfelld eða heil. Nei nei nei! Þeir sem sköpuðu Optimus voru nefnilega Quintesson-urnar! Og til að gera söguna ennþá styttri þá jú, Optimus Prime lifnar við og bjargar deginum eins og var hans alkunna viska og jú hann endurheimtir sæti sitt sem leiðtogi Autobotta.

Fyrsta kynslóð Transformers lauk síðan göngu sinni í 4ðu þáttaröð með 3 þáttum sem kölluðust Rebirth. Optimus Prime dó þó þó ekki í þeim þáttum en svona allt að því næstum.

Svona að lokum. Ég geri mér grein fyrir því að þetta voru 20 mínútna auglýsingar og allt það. Það er þó með þetta eins og allt annað að þó þetta sé barnaefni eins og með allt annað barnaefni, þá er þetta skrifað að fullorðnum og þetta ber þess alltaf merki. Helsta ástæða þess að Transformers fylgir svona gríðarleg nostalgía þeim sem á þá horfðu í æsku er einfaldlega sú að transformers sem slíkir voru geðveikir. Stakir þættir voru náttúrulega alger steypa og enn aðrir þættir voru einfaldlega bara lélegir en Transformers verður minnst fyrir það hvað þeir voru epískt frábær hugmynd en ekki vegna stakra þátta sem vægast sagt sugu böll!

Hrós er bull!
Já kæru lesendur og góðan daginn.

Eðli mannsins samkvæmt er auðveldast að sjá það sem sker sig úr. Þú lesandi góður sérð þennan texta vegna þess að hann sker sig frá bakgrunninum. Ef textinn hinsvegar væri í sama lit og bakgrunnurinn þá sæirðu hann ekki, textinn væri þarna en þú sæir hann bara ekki. Sama gildir um allt annað sem sker sig úr. Þú tekur eftir því en skeytir litlu sem engu um það sem venjulegt er.

Það má því segja að til sé eitthvað sem er eðlilegt, köllum það norm, og síðan það sem er ekki eðlilegt, það sem sker sig úr. Þess vegna er mjög mikilvægt að vel sé til vandað þegar fólk skilgreinir sitt persónulega norm. Þess vegna er hrós bull!

Fólk sem hrósar fólki sérstaklega fyrir að gera eitthvað vel er ekki bara að segja öllum öðrum að þeir séu drullusokkar, NEI!!!  Í hvert skipti sem þú hrósar einhverjum fyrir að gera eitthvað vel þá ertu ekki að bara að kalla alla aðra drullusokka, þú ert að setja normið þitt við það að það sé í lagi að gera eitthvað illa og það á ekki að sætta sig við það að menn drulluskíti sér í gegnum einföldustu hluti eins og þá að gera eitthvað almennilega!

Hey – ég keypti sjónvarp borgaði gommu af seðlum og þeir meira að segja báru það út í bíl fyrir mig, góð þjónusta þar! ÖHHH NEI! Leyfum okkur að skoða þetta örlítið betur. Einhver rasshaus selur þér sjónvarp og þiggur að launum peninga frá þér og þar með höfum við það það er eðlilegt, það að hann beri sjónvarpið út í bíl fyrir þig er bara sjálfsagt mál. Fólk sem hrósar fyrir svona þjónustu finnst það bara vera sjálfsagt mál að það fari og kaupi sjónvarp og þegar það er búið að borga þá heyri það “Ok þú ert búinn að borga, taktu núna helvítis sjónvarpið þitt og drullaðu þér út”. Þetta sést best á því að sjónvarpssalinn sem sýnir þá sjálfsögðu virðingu að hjálpa þér að bera sjónvarpið ,sem þú keyptir af honum en ekki einhverjum öðrum, út í bíl.

Þess vegna er mjög mikilvægt að hrósa ekki heldur leggja mikla áherslu á það þegar að einhver er drullusokkur eða hundarúnkari! Með þeim hætti þá seturðu normið við gott, gott fólk, vel unnin störf og annað sem á eðli málsins samkvæmt að vera gott mál. Með því að kalla þá sem eru drullusokkar drullusokka þá ertu á sama tíma að segja þeim sem þú kallar ekki drullusokka að viðkomandi sé góður einstaklingur. Ennfremur ertu að segja viðkomandi drullusokkum að þeir séu drullusokkar og þeir þurfi að drullast til að taka sig á. Taktu þig á þarna helvítis drullusokkurinn þinn er því ekki neikvæð setning!

Maker of the sinner 2
<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="640" height="505" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/5YdeLZeAQiw&hl=en&fs=1&" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="640" height="505" src="http://www.youtube.com/v/5YdeLZeAQiw&hl=en&fs=1&" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true"></embed></object>

Myndbandið sem allir eru búnir að vera að bíða eftir. Maker of the sinner 2. Hann er mættur aftur og í þetta skiptið er hann miklu meira bad-ass en nokkru sinni fyrr!

Dans er glíma!
Já, það segir allaveganna Geir Ólafs og hefur alltaf sagt. “Besta leiðin leiðin til að heilla beyglur upp úr skónum á dansgólfinu er að tækla þær bara í gólfið – Allur sá dans sem þær þurfa á 3 sek … og þú lítur ekkert hommalega út” segir Geir gjarna og bætir oftar en ekki við “Sjáðu mig bara, ég veð í kellingunum – enda eitraður tæklari!”.

Því ákvað Geir að draga mig á dansnámskeið Kölska þar sem hann taldi Tangóhæfileika mína vera helst til gagnslausa. “Bjarni það fær enginn að ríða út á tangó – Ég hef aldrei fengið að ríða út á tangó … þannig að það er ekki hægt að fá að ríða út á tangó” segir hinn eitursnjalli dansari Geir Ólafs. “En Geir, Dans þarf ekkert alltaf að snúast út á það að fá að ríða- Geta 2 einstaklingar ekki bara dansað saman til þess að skemmta sér – Konur eru vitibornar tilfinningaverur sem eiga skilið virðingu” sagði ég er ég reyndi að andmæla vægast sagt hatursfullum fullyrðingum Geirs í garð kvenna. “Bíddu ertu þroskaheftur Bjarni eða?” spurði Geir hárri röddu vægast sagt reiður ” Til hvers í fjandanum heldur þú að konur hafi sköp – Af því að þær séu svo geðveikt frábærar – Heldurðu að guð búi í píkunum á þeim og bæti þeim það þannig upp að þær hafi ekki typpi – Heldurðu það – Í ALVÖRU – Viltu ekki bara fara að kalla hundinn þinn vitsmunaveru – Og viltu ekki bara setjast niður með honum og spila skák með honum – DÖHHH – HUGSA BJARNI, HUGSA!!!!”.

Ég sá því að fyrst Geir Ólafs orðaði þetta svona skynsamlega gat ekki verið um annað að ræða en að hann hefði rétt fyrir sér! Ég ákvað því að leyfa Geir Ólafs að draga mig með sér á það sem hann kallaði Dansnámskeið Kölska. Námskeiðið er kennt við Kölska af sömu ástæðu og þríleikur kölska er kenndur við Kölska … því þar koma saman 2 karlmenn. Reyndar voru engar konur á dansnámskeiðinu en það var bara vegna þess að sögn Geirs Ólafs að ef þeim yrði hleypt inn þá myndi námskeiðið missa tilgang sinn.

“Sko Bjarni – Það eru nokkrar gerðir af tæklingum sem maður þarf að kunna þegar að maður er dansbransastjarna eins og ég” sagði Geir sposkur. “Sú sem mér finnst skemmtilegust er Tangódýfutæklingin – hún er epísk”

“Svo er líka til önnur tækling sem mér finnst gaman að nota sem ég vil kalla: Fly-me-to-the-moon-tæklinguna. Hún er ekki mjög ólík Tangódýfutæklingunni að því leyti að þú lendir ofan á beyglunni þannig að þú bæði tæklar hana og þú lendir ofan á þannig að þú veist þá fyrirfram hvernig það er” sagði Geir sem greinilega kunni vel við sig á dansnámskeiði Kölska.

“Ég má síðan alls ekki gleyma 2 mikilvægum tæklingum. En þær eru ekki beinlínis ætlaðar til þess að komast yfir beyglur. Meira svona snyrtimennskutæklingar – Þú veist, það slettir kannski einhver óvart niður bjór eða melónubríser á dansgólfið og hver vill dansa í polli? Nei þá er best að finna einhverja vel valda beyglu og tækla hana ofan í pollinn svona til að þurrka hann upp. Virkar best að nota feitar beyglur í þetta vegna þess að þær dekka gólfið svo vel þegar að þær detta á rassinn” mælti Geir kampakátur og maður gat ekki annað en velt því fyrir sér hvort Geir Ólafs hefði mögulega fæðst á dansnámskeiði Kölska …

“Síðan er náttúrulega hin aðferðin sem getur verið skemmtileg. En hún er ekki beint tækling. En þá tekurðu bara beygluna upp og snýrð henni við og heldur hausnum á henni yfir pollinum þannig að hárið á henni drekki í sig pollinn. Bara verst hvað þær verða sóðalegar og illa lyktandi á eftir, vegna þess að þegar að maður er búinn að púlla þetta trikk þá standast þær mann ekki á eftir. En þá er bara að senda þær í sturtu … Hehehe – Ég er Geir Ólafs … ég kann’etta … úje!” hefði ég gjarnað viljað mæla manna heilastur en Geir Ólafs varð mér víst fyrri til að mæla þetta, enda er hann Geir Ólafs. Hann kann’etta!

Geir Ólafs vildi endilega sýna mér annað bragð en það var helst til sóðalegt og sagan sem fylgdi því jafnvel enn sóðalegri og verður sú saga ekki birt hér á bjosep.net hinum algóða fjölskylduvef þar sem kristilegum og hefðbundnum fjölskyldugildum er gert hátt undir höfði. Því miður krakkar … það verður að draga línuna einhversstaðar!

Góðar stundir!