Kirkja hins heilaga Saab! » Plebbaskilgreiningar

Þú veist að þú ert plebbi #3
Já gott fólk, þið vitið að þið eruð plebbar ef að þið fóruð að grenja í dag út af KREPPUNNI! Já takk!

Núna eru góðir tímar að lifa á Íslandi, framtíðin er björt og vissulega er óvissa, það er alltaf óvissa. Óvissa er dásamleg! Sumir sitja kannski með vasaklút og þverra tárin sem streyma úr augunum út af fjárhagsáhyggjunum! Fjárhagsáhyggjur, hvað er það eiginlega? Kynsjúkdómur fyrir HOMMA?

Nei gott fólk, það er yndisleg tilfinning að sitja svona útnærður af góðærinu og horfa fram á veginn í þessari bullandi björtu framtíð. Það er fátt annað en bongóblíða framundan!

Já, nú halda kannski að ég sé bara að bulla, aðrir hugsa kannski æi Bjarni haltu nú einu sinni kjafti og þroskastu. En við ykkur segi ég nú bara, drullist bara á barnaland ef þið þurfið að velta ykkur upp úr svartsýni og volæði. Hér á bjosep.net horfum við raunsæjum augum á nútímann.Það var ekki ég sem hélt skammbyssu að höfðinu á ykkur og neyddi ykkur til að taka lán til að kaupa drasl sem þið höfðuð enga þörf fyrir. Það breytir því engu að síður að að framtíðin er björt …. fyrir alla aðra en ykkur.

FEIS!

Þú veist að þú ert plebbi #2
Já gott fólk, plebbarnir eiga hug minn allan og djöfull skulu þeir fá að heyra það í dag!

Þú veist að þú ert nautheimskur plebbi ef að eitthvað málefni fangar hug þinn allan og þú telur að þú sért að sýna málefninu stuðning með því að setja eitthvað merki fyrir framan nafnið þitt á msn eða ganga í einhvern hóp á facebook! Að ég tali ekki um að fara niður á ráðhústorg haldandi það að rauð spjöld komi til með að stöðva ofbeldi í undirheimunum.

Í alvöru, haldið þið að sjálfur guð almáttugur og Partý-Sússi hangi á facebook allan daginn og ákveði hvernig hlutirnir gangi eftir því hversu margir hafa skráð sig í hópinn “konur í jafnréttisbaráttu – við erum feitar ljótar og latar og nennum ekki að vinna okkur upp” EÐA eruð þið bara svona ógeðslega vitlaus?

Þú veist að þú ert plebbi #1
Þessi fyrirsögn á eftir að birtast svona 100x hérna á næstunni, en plebbar eru alveg að drepa mig þessa dagana og þetta er svo víðfemur hópur að af nógu er að taka.

En allaveganna, þú veist að þú ert plebbi(og í dag tökum við bara fyrir kvenkynsplebba … og homma) ef að þú mætir í tíma/vinnuna með eitthvað helvítis ógeðslegt sjal til að breiða yfir axlirnar og vefja svo utan um þig þegar að þér er kalt. Þú veist svo að þú ert kjánalegur plebbi ef að þú mætir með eitthvað helvítis heklað “netasjal” í tíma og vefur því um þig til að halda á þér hita.

Gott fólk, hvað varð um það að mæta bara í peysu í tíma/vinnuna? Ekki láta plebbaskapinn drepa ykkur. Peysur til sigurs!

P.S. ég flokka þetta sem plebbaskilgreiningar, þar sem ég er jú að skilgreina plebba, og fávitar, þar sem jú allir plebbar eru meira að minna fávitar!

Húshræjaplebbar!
Ef það er eitthvað sem kemst í námunda við þann plebbaskap að eiga hest þá er það pakkið sem á húsbíla eða húskerrur og þykist fara í útilegur.

Hverja einustu sumarhelgi streymir þetta drulluhyski í unnvörpum út á þjóðveginn á hræjunum sínum til þess eins að geta keyrt nokkur hundruð kílómetra og stoppað á einhverju vel útilátnu tjaldstæði, skellt hræinu í samband við rafurmagn, opnað bjórkælinn, kveikt á sjónvarpinu, sett einhvern vel valinn mynddisk í tækið og drepist áfengisdauða í upphituðu hræinu. Haldið upptekinni iðju áfram næsta dag og haldið síðan heim á leið og dásamað það hvað það sé nú gott að hafa farið í útilegu, komast aðeins frá ys og þys borgarerilsins.

JEEEE RÆT! Maður hlýtur að spyrja sig hversu mörgum dauðsföllum hafa þessir offitusjúku þrælar gerviþarfa á sínum lúshægu aflvana húshræum valdið með sífelldri raðamyndun sinni. Svarið er ekki flókið, þau hljóta að skipta tugum ef ekki hundruðum. Og þá hlýtur maður að spyrja, HVAR ER RÍKISSTJÓRNIN? Ríkisstjórnin situr aðgerðalaus meðan að þessir umferðarhryðjuverkamenn stífla umferðaræðar landsins ítrekað hvern einasta dag hvert einasta sumar. Ríkisstjórnin ber ábyrgð.

Hvað ber ríkisstjórninni að gera? Fyrst og fremst á að virkja lögregluna til þess að stöðva hvern einasta húsbíl sem sést á íslenskum þjóðvegum og kveikja í honum á staðnum, ennfremur á að skikka hvern einasta offitusjúkling í þessum hópi í megrun á staðnum. Gerviútileguplebbarnir er hópur offitusjúklinga sem geta ekki unnið handtak hvert einasta sumar vegna þess að þeir geta ekki mætt til vinnu vegna þess að hvert einasta ferðalag á húsbíl fyrir ferðahelgi tekur 3 daga og svo tekur aðra 3 daga fyrir þetta drulluhyski að koma sér til baka, sem talnaglöggir einstaklingar ættu að sjá að er svona eins og ein vika í heildina.

Ég get þó ómögulega drullað yfir þessa plebba og gleymt að minnast á það stórhættulegasta við þetta hyski. Það er ekki það að þeir stofni öllum í hættu með því að aka 300 saman í röð á bílum með hámarkshraðann 10 km/h eða að þetta sé alltaf fullt eða að þeir séu það miklir offitusjúklingar að ef að húsbíllinn snögghemlar að þá þjóti bílstjórinn eða farþeginn eins og fallbyssukúlur með ógnarmiklum skriðþunga fram úr bílnum tilbúin til að sökkva heilu herskipi ef svo ber undir. NEI ekkert að þessu! Það er sú staðreynd að meðalaldur húshræaplebba er svona 300 ár og því kunna viðkomandi á engan hátt að aka ökutæki og eiga á engan hátt heima í neinu sem á nokkurn hátt heitir eða tengist umferð.

Þetta hyski ætti bara að sjá sóma sinn í því að hanga heima hjá sér og drekka sig fullt þar og horfa á sínar ömurlegu kvikmyndir þar og hlífa fólki sem notar umferðaræðar þessa lands til þess að FERÐAST frá því að verða saklaus fórnarlömb yfirmáta plebbisma og fullnægingar gerviþarfa getulausra offitusjúklinga!

Hestaplebbar
Jæja, ætla örlítið að deila á einhverja verstu djöfulsins plebba, smáborgara, skítalýð og offitusjúklinga sem kallast í daglegu tali hestamenn.

Hestar hafa fætur, það hefur þú líka lesandi góður, þarft þú vegi til þess að komast ferða þinna? Nei það þarftu ekki, þú kemst út um allt án vega, það ættu hestar að gera líka og þeir gera það, en einhverra hluta vegna þegar að 300kg offitusjúklingarnir eru búnir að hoppa á bak þá þarf skyndilega að sundurgrafa allt landið og leggja hestavegi og jafnvel sundurgrafa gamla nothæfa slóða til að búa til “hestavegi”.

Og hvernig virka hestavegir, skilningur hestamanna á þeim er sá að þar megi bara hestamenn ríða, skilningur hestamanna á göngustígum er sá að þar megi gangandi og hjólandi vera en þeir þurfi að stoppa og víkja fyrir hestamönnum og sýna þeim tilhlýðilega virðingu. Sannleikurinn er hinsvegar sá að hestavegir eru fyrir alla, það er svo sem við hæfi að fæla ekki hestana á hestavegum, það takmarkast þó við innræti viðkomandi en hestar eiga ekkert erindi á göngustíga, frekar en drullan sem þeir skilja eftir sig eða eigendurnir, þetta er þó allt í ætt við eðli eigendanna.

Og af hverju velur nokkur einasti einstaklingur að sitja hest? Jú, viðkomandi er offitusjúklingur. Of latur til að labba og of heimskur til þess að reka vélfák, að því ógleymdu að viðkomandi er einnig of mikill alkóhólisti til þess að geta notið þess að aka vélfák án þess að vera vægast sagt ölvaður. Hugur þessara smáplebbarasshausa vex þó helst til mikið þegar að þeir setjast á bak og fyllast þeim ranghugmyndum að þeir séu kóngarnir yfir Íslandi og eigi landið og öllum öðrum en hestamönnum sé óheimilt að koma í návígi við viðkomandi.

Algera úrkynjun Íslensku þjóðarinnar má svo sjá þegar að landsmót hestamanna er haldið. Þangað flykkist hver einasti smáborgararasshaus og offitusjúklingur og lýsir því yfir hvað hann sé mikill hestamaður og hestaplebbi og allur í hestamennskunni og njóti þess að klæða sig upp í níðþröngar hestabuxurnar og ríða út, buxur sem allir aðrir en hestamenn kalla í daglegu tali extra extra extra large, í alvöru talað þá er baðvogin ekki stigavél og 300 er fullt hús heldur ábending um að þú sért svæsinn offitusjúklingur og ættir kannski að drullast til þess að sleppa hamborgurunum allaveganna þrisvar sinnum á dag og kannski reyna að nota ógeðisskankana sem þú vilt kalla fætur, bara ÖRLÍTIÐ. Iðja þessa lýðs felst svo í því að safnast saman til þess að sjá bykkjurnar hlaupa í hringi, drulla og riðlast á girðingarstaurum, drekka sig svo blindfullt, vakna þunnt og horfa á einhvern alkóhólistann segja hott hott við hræið sitt meðan að það hleypur í hringi. Þegar rennur af því stillir þetta helvítis skítapakk væntanlega á bylgjuna þar sem einhver smáborgara og plebbamúsík fær að njóta sín, milli þess sem þau öskra afturí á krakkagerpin sín að hætta að fleygja rjómatertunum fram í eða tuða yfir því hvað bensínverð sé hátt og að það sé ómögulegt að reka bíl lengur vegna kostnaðarins, algerlega grunlaust um hversu langt leitt það er af offitu lítandi öll út eins og flatbökur í framan og svo feitt að bílstjórinn þarf meirapróf til þess að mega keyra fjölskyldufólksbílinn.

Hestamenn eru offitusjúkar plebbarasshausar sem skilja eftir sig skít og drullu hvar sem þeir eru, það væri kannski nær lagi að skikka hestamenn til þess að hirða uppeftir bykkjurnar, þó svo að maður sé ekki alltaf viss um það að þeir laumi ekki einum eða tveimur með sjálfir, enda einkar gaman til þess að hugsa að einn einasti göngustígur á landinu fái varla að liggja óhultur fyrir því rekstraraðili hans drekki honum í möl af ótta við að einhverjir hestaplebbar sjái sér ekki hag í því að teyma þar um hundruðir hesta með annan eins fjölda offitusjúklinga á bakinu.

Trítlarnir
Eins og lesendur þekkja þá geislar af mér umburðarlyndið og víðsýnin og því fátt sem ég þoli ekki, það er þó eitt sem ég þoli ekki og það er hin algerlega hæfileikasnauða og vægast sagt ömurlega rjómasullshljómsveit frá Lifrarlaug, bítlarnir. Það að fullorðið fólk sem greinilega er með 2 eyru á hausnum og klárlega allnokkura heyrn skuli á annað borð þola þennan viðurstyggilega skort á getu fjögurra einstaklinga til að framkalla tónlist og lýsi því jafnvel yfir í heyranda viðurvist að þeir séu aðdáendur fellur algerlega utan getu minnar til að skilja og engan veginn innan ramma umburðarlyndis míns.

Ég veit þó ekki hvort það á að koma mér minna eða meira á óvart að starfandi tónlistarmenn hlaupi upp til handa og fóta til að lýsa yfir aðdáun sinni á þessum rasshausum sem afrekuðu fátt annað á lífsleiðinni en að koma fram í viðurvist þúsunda ungmeyja sem öskruðu sig hásar eins og þroskaheftir fávitar á ofskynjunarlyfjum til þess eins að yfirgnæfa viðbjóðinn sem vall út úr hátölurunum hverju sinni. Hafi þér fundist skorta punkt einhversstaðar í síðustu setningu, máttu skeina þér.

Skoði maður hinsvegar hverjir þeir tónlistarmenn eru sem helst halda heiðri rasshausanna á lofti kemur ekki á óvart að þeir dýrki slíkt metnaðarleysi og skort á getu til að setja saman lög sem einkenndi bítlana. Enda erfitt að selja kröfuhörðu fólki tónlist, hafi það á annað borð alist upp við að hlýða tónlist metnaðarfullra og hæfileikraríka tónlistarmanna. Auk þess er hætt við því að sultarólin þrengdist nokkuð og atvinnuhorfur versnuðu til muna ef þessir sömu einstaklingar gætu ekki gert sér þann dagamun að kreista fé út úr ,að því er mætti halda, heyrnalausu fólki með því að útfæra karíókísöngleiki og snara erlendum vælutextum yfir á okkar annars ástkæra ylhýra tungumál.

Þá finnst mér þó frekar að viðkomandi ættu að leggja þann þó litla metnað og litlu hæfileika sem þeir mögulega búa yfir til þess að semja einhverja tónlist sem fólk mögulega hefði áhuga á því að fjárfesta í eftir að hafa hlýtt á. Ég myndi allaveganna halda að það væri vænlegra til árangurs að gera hlutina betur en verr. Þess í stað virðast menn þó haldnir þeirri þráhyggju að dæla út handónýtum viðbjóði sem enginn með réttu ráði myndi verja nokkurri einustu krónu í, fara svo í fýlu þegar ekkert selst og kenna ólöglegu niðurhali á netinu um tap á sölu!

Í æsku heyrði ég það alloft að Gestur Einar Jónasson væri einhver sérstakasti útvarpsmaður Íslands, því hann væri eini útvarpsmaðurinn sem spilaði alltaf Bítlana. Hefði ég ekki heyrt aragrúa annarar eins rassgatsþvælu yfir mína annars þriðjungslöngu ævi, þá væri þetta einhver mesta rassgatsþvæla sem ég hefði heyrt, það er hún þó ekki en klárlega meðal jafningja. Hver mínúta af bítlatónlist í útvarpi er mínúta af útvarpsspilun sem hæfileikaríkir tónlistarmenn fá ekki!