Kirkja hins heilaga Saab! » Snillingar

Radíusflugur
Þeir radíusbræður Steinn Ármann og Davíð Þór eru miklir grínarar og án þess að ég hafi hugmynd um það þá voru þeir væntanlega með einhvern útvarpsþátt á árunum 1994-1995 eða eitthvað álíka. En á þessum tíma tóku þeir grínbræður sig til og tóku upp stutta sketsa sem kallast radíusflugur. Þessar flugur eru alveg frábærar vegna þess að þær eru uppfullar af kúka og kynlífshúmor.

Ég hef því ákveðið að brjóta höfundarréttarlög og deila alveg heilum 3 flugum með lesendum eða … hlustendum.

Fyrsta flugan ber hið erna nafn “FM-klám” og fjallar um Sundi Hansen útvarpsmann á Klámstöðinni.

Næsta flugan ber heitið Skodahatari og fjallar um skýrslutökuna lögreglunnar yfir Sumarliða Vagnssyni eða Sigmari Vagnssyni, ég er ekki alveg viss … og mér er drullusama eiginlegast.

Og síðasta flugan í þessari fyrstu færslu í þónokkurn tíma ber heitið rúmsölumaður og fjallar um það ferli að kaupa sér nýtt rúm.

Fleira var það ekki að þessu sinni. Þakkir og kveðjur berist þeim grínbræðrum, en allar peningagjafir berist mér.

Ég elska trúarbrögð!
Já þið lásuð rétt, trúarbrögð eru frábær. Það tók mig langan tíma að átta mig á því, en trúarbrögð eru frábær.

Fyrstu skemmtilegu kynni mín af trúarbrögðum voru klárlega goðsagnir, grískar og norrænar. Þær eru fjörugar, nóg af blóðsúthellingum og annað sem ungum manni skemmtir. Ég hafði náttúrulega komist í kynni við biblíulestur þegar ég var ekki mikið eldri en 6 ára, en það verður nú að viðurkennast að þessar biblíusögur eru ekkert sérstaklega djúsí. Blóðið rennur aðallega í gamla testamentinu minnir mig auk þess sem hin útvalda þjóðs virtist ekki hafa annað að gera en láta hertaka sig. Allavega fundust mér norrænu og grísku sögurnar miklu skemmtilegri. Ímyndunaraflið á bakvið goðsögurnar virðist líka hafa verið miklu meira og skemmtilegra auk þess sem sérstaklega grískar goðsögur fela í sér mikið af stríðum og átökum, sem er mikilvægt. Stríð eru skemmtileg fyrir þá sem ekki hafa upplifað slíkt.

Það fyrsta sem ég lærði af trúarbrögðum sem bar einhvern ávöxt fyrir mig var þegar að ég fermdi mig. Þá lærði ég að það getur borgað sig að ljúga. Ég, þá að verða 14 ára gamall, klæddi mig í hvítan kyrtil og játaði trú mína á einhvern guð á himnum, son hans jesú og heilagan anda eða eitthvað álíka. Og fyrir það hlaut ég alveg gommu af drasli og helling af seðlum. En þetta var ekki án fórna, fermingarbuxurnar mínar voru alveg ógeðslega óþægilegar og ég þurfti að fara í þeim í ferminguna og sitja í þeim í klukkutíma eða eitthvað og svo var ég í þeim allan daginn nánast meðan veislan sjálf var. Talandi um fórnir.

Annað sem trúarbrögð hafa gert sem gerir lífið einfaldara eru miðaldirnar. Ímyndum okkur bara hvar mannkynið væri statt hefði kirkjan ekki tekið að sér það hlutverk að halda niðri framþróun í vísindum með ofbeldi. Við ferðuðumst örugglega í fljúgandi bílum og værum búin að “nema land” á öðrum hnöttum og það væri með öllu ómögulegt að vera vísindamaður. Skilningur okkar á náttúrunni væri slíkur að það tæki fleiri fleiri ár bara að læra það alltsaman auk þess sem það væri lítið sem ekkert eftir að rannsaka nema fyrir þá sem hefðu greindarvísitölu yfir 200. Þannig hjálpar kirkjan okkur, við hin heimsku getum í dag auðveldlega orðið vísindamenn og fyrir það verðum við að vera þakklát.

Og enn annað sem trúarbrögð hafa stuðlað að eru stríð, eins og ég minntist á áðan, og stríð gera góða sögu betri. Stríð eru mikilvæg, ef það væri ekki fyrir stríð þá væri mannkynssagan leiðinleg. Það myndi enginn nenna að lesa sögubækurnar, nema sagnfræðingar sem væru allir klikkaðir, því þær fjölluðu ekki um annað en þróun landbúnaðar, kaupsiglinga og borgarsamfélaga. Uppfinningar og vísindi væru ekki einu sinni til umræðu, því til hvers í fjandanum að vera að þróa eitthvað þegar að þú og nágranni þinn eruð vinir sem eruð ekki í stríði. Fólk sem deyr í stríðum hefði hvort eð er bara dáið úr einhverju öðru, en með því að deyja í stríði þá stuðlar það að því að gera góða sögu betri og fyrir það ætti það að vera þakklátt!

En það allra skemmtilegasta við trúarbrögð að mínu mati er það hversu trúarbrögð fá fullorðið, viti borið fólk til þess gjörsamlega að missa stjórn á vitsmunum sínum út af engu. Og þá er ég ekki bara að tala um trúað fólk, heldur líka trúlaust fólk sem getur engan veginn unað öðru fólki að vera trúað.

Ég var einu sinni öfgatrúlaus, fannst trúað fólk vera asnalegt. Hljóp inn í miðja messu og kallaði alla þar inni fífl og hálfvita, meig á altarið og klæddist fötum sem á stóð “Jesus is a cunt”. Þetta var á þeim tíma sem ég las vantrú mikið. Vantrú var frelsarinn minn og svona gekk þetta í nokkurn tíma alveg þangað til ég þroskaðist eða fékk höfuðhögg og ég laðast frekar að því að því að hafi fengið höfuðhögg því það hefur löngum verið einn af mínum helstu kostum að ég þroskast ekkert.

Eftir þetta meinta höfuðhögg mitt þá fór ég einhvernveginn að sjá ljósið, ég fór að taka eftir því að mestallt sem rætt var um á Vantrú virtist ekki skipta NEINU máli hvað snerti heildarmyndina og oftar en ekki fjölluðu greinarnar bara um meinta sigra þeirra á andstæðingum sínum í bloggheimum. En aftur á móti fór ég að sjá hvað trúað fólk er hreinlega frábært, ég fór líka að hafa húmor fyrir sköpunarsögunni. Eftir höfuðhöggið gat ég farið að hlæja að því hvað Guddi væri frábær gaur að aldur jarðar væri 4.567 milljón ár og hvað það væri frábært að muna þetta. Maður sá líka hlutverk kvenna í mikið skýrara ljósi en áður. Af hverju eiga konur t.d. að vaska upp? Jú það stendur í biblíunni, og af hverju eiga konur að vera undirgefnar mönnum sínum? Jú það stendur í biblíunni. Og af hverju mála konur sig og ganga í háum hælum? Því þær eru litlar og ljótar.

Trúað fólk er líka oft svo skemmtilegt og hefur svo skemmtilega sýn á lífið. Tökum sem dæmi Gunnar í Krossinum. Þegar hann mætir í sjónvarpið þá er alveg tryggt að það verður góður þáttur. Hann og andstæðingur hans munu verða algerlega ósammála, þeir munu jafnvel öskra hvorir á annan, samkynhneigðir verða sagðir lifa í synd, einstæður mæður munu sagðar frá Babýlon og fólki sem á bleikar Toyotur verður lofuð vist í helvíti. Er hægt að ætlast til þess að sjónvarp verði öllu betra?

Höfuðhöggið gerði mér það líka ljóst hvað öfgatrúleysingjar geta verið miklir rasshausar. Það er fólk sem hefur nákvæmlega ENGAN húmor fyrir því að eitthvað sé svona vegna þess að guð skapaði það svona eða vegna þess að það stendur í biblíunni. Að þessu leyti er trúaða fólkið frábært. Það trúir og það skiptir engu máli hversu sterk rök einhver færir fyrir því að guð sé ekki til eða að eitthvað sé ekki sköpunarverk guðs að hinn trúaði er ALDREI að fara að skipta um skoðun, og það sem er frábært við það er að hinir öfgatrúlausu virðast ALDREI ætla að átta sig á þeirri staðreynd. Og það er mikilvægt.

Og hvers vegna er það mikilvægt? Jú vegna þess að við þær aðstæður fer fólk að rífast, og þegar fólk fer að rífast þá er gaman. Þetta vita allir, umræðufundir sem leysast upp í vitleysu vegna háværs rifrildis eru t.d. miklu skemmtilegri en umræðufundir sem leiða til niðurstöðu og skila árangri. Hver þarf á slíku helvítis drasli að halda. Fólk sem mætir á umræðufundi til þess að komast að niðurstöðu getur bara drullast til þess að sitja heima hjá sér að vaska upp og horfa á Opruh. Lífið á ekki að vera hagkvæmt og árangursríkt heldur skemmtilegt og ævintýraríkt.

Þess vegna eru trúarbrögð frábær.

Eitruð tónlist!
Já kæru lesendur. Eins og ekki fór fram hjá neinum þá uppgötvaði ég hinn hulda heim nostalgíunnar í vor, það er NES-gleðina og tónistina sem henni fylgdi. Og eins og svo mörgum sem spiluðu þessa leiki þá er líklegast hægt að vera sammála um það að hversu illa sem þeir hafa elst … þá hefur tónlistin úr þeim svo sannarlega ekki gert það.

Leikurinn sem ég spilaði alveg pottþétt hvað mest var Double Dragon II – The revenge, þó svo að ég hafi líklegast verið búinn að klára þennan leik svona tvöþúsund sinnum þá var hann alltaf jafn góður á sínum tíma … og í dag þegar að maður spilar hann á emulator þá er hann alveg jafn góður. En fyrst hann hefur ekkert versnað þá hlýtur tónlistin ekki bara að hafa haldið sínum stað, heldur hefur hún batnað. Óneitanlega.

En áður en ég vind mér í Double dragon 2 þá ætla ég að spila fyrir ykkur stefið úr Double dragon 1, leik sem ég spilaði reyndar aldrei en tónlistin í þeim leik er engu síðri.Titillagið er náttúrlega epík, eins og alltaf í double dragon leikjunum.

Lagið sem var notað í fyrsta borði var líka epískt, takið eftir hljómborðsgeðveikinni sem byrjar á annarri mínutunni.

Nú vindum við okkur yfir í Double dragon tónlistina. Takið eftir muninum á upphafstefinu úr 1 og 2. Leikirnir 2 komu út með rúmlega árs millibili(1988 og 1989)

Besta lagið í þessum leik var klárlega lagið sem hljómaði þegar að maður barðist við endakarlinn í leiknum. Klárlega eitt besta lag sem hljómað hefur í tölvuleik og eiginlega fyrsta lagið sem ég hugsaði um þegar að ég rakst á double dragon myndband á youtube. Eitrað lag, því verður ekki neitað!

Næsta ætla ég svo að leyfa ykkur að heyra upphafsstefið úr Double Dragon III. Þó svo að ég hafi spilað þann leik þá komst ég líkt og svona 90% mannkyns aldrei í gegnum fyrsta borðið og því væri tilgangslaust fyrir mig og ykkur að fara að spila einhverja tónlist sem enginn þekkir. En stefið er gott … enn og aftur takið eftir muninum á 1,2 og 3.

EN alþjóð veit það víst líka að Double dragon voru ekki einu leikirnir sem komu út á NES,og nei ég ætla ekki að fara að fara að tala um Mario Bros, einn stórleikurinn af þeim mörgu var klárlega Jackie Chan Action Kung Fu sem var einmitt til heima en þar hét hann skröggedí skröggeda vegna þess að miðinn á leiknum var bara með kínverskum eða japönskum táknum. Eitraður leikur engu að síður og tónlistin spillti ekki fyrir þar.

Og ég verð að vara lesendur við því að þeir gætu dottið í trylltan dans, SÉRSTAKLEGA ÞÚ GEIR ÓLAFS !!!

Og verið ekkert að taka af ykkur danshemilinn.

Næsti leikur sem ég ætla að fjalla um er leikurinn Castlevania og sagan af því hvernig ég eignaðist hann var æði hressandi. Eina búðin sem ég man til þess að hafi selt leiki í Famicom eða Family game eins og við kölluðum tölvurnar var Radio Naust. Og þar voru þeir, ef mig misminnir ekki, læstir inni í glerskáp. En mér er sérstaklega minnugt þegar að ég fór að kaupa Castlevania af því að í upphafi ætlaði ég ekkert að kaupa Castlevania, ég byrjaði á því að kaupa Mario Bros og Street Fighter saman á hylki og hélt að ég væri að gera þvílík kaup, 2 leikir saman í pakka á verði eins. Síðan fór ég him alveg eldhress og ætlaði að fara að spila Mario leikinn, en hvað sem ég gerði þá var ekki hægt að spila leikinn. Það var bara hægt að spila Street fighter og þar var Mario skyndilega orðinn ein af persónunum … WTF!!! Allavega endaði þetta þannig að ég fór og skilaði leiknum og fékk í staðinn Castlevania. Með þessu líka eitraða upphafsstefi!

Enn og aftur verð ég að leggja ríka áherslu að fólk setji í grimman danshemil og enn og aftur þá á þetta sérstaklega við þig GEIR ÓLAFS!

Síðasti leikur hvers tónlist ég ætla mér að fjalla um í þessari færslu er enginn annar en hinn mjög svo eitraði Mega man 2. Á youtube má finna röð myndbanda sem kallast “From bleeps to beats – Music of the video games” og hver svo sem ástæðan fyrir því er að höfundur myndbandaraðarinnar setti Mega man 2 í fyrsta sæti, þá er það “eyrnaljóst” að tónlistin úr þessum leik á klárlega heima mjög ofarlega á hvaða skala sem er. Fyrir þá sem efast þá er ekki annað hægt að skella nokkrum lögum á. Ímyndaðu þér þetta: Þú ert með mega man 2 hylkið í höndunum og ert að fara að afmeyja það í fyrsta skiptið og það sem tekur á móti þér þegar að þú ræsir tölvuna er þetta …

Þú verður náttúrulega Sega MEGA trylltur um leið og danshemilinn brotnar í tætlur, sérstaklega hjá Geir Ólafs sem er núna byrjaður að dansa upp á veggjum og neðan í loftinu af slíkum ákafa að annað eins hefur ekki sést síðan hópur vélmenna rændi Urðu til þess að sjá um uppvaskið hér um árið. Og ofan á þá dansgeðveiki kemur þetta …

Og ég get eiginlega ekki annað en beðið nágranna Geirs afsökunar á dansgeðveikinni sem á sér stað, en þessi færsla og sú sannleikur sem hér er ritaður á bara erindi við alheiminn og ef þið getið ekki drullast að sætta ykkur við það að Geir Ólafs er óstöðvandi DANSMASKÍNA ,sem er dansar á veggjum og loftum, þá er eitthvað að ykkur!

Nú er líklegast Geir Ólafs búinn að rústa loftinu hjá sér og byrjaður að dansa í loftinu á íbúðinni fyrir ofan sig, en það er allt í lagi. Það að vera agnúast eitthvað út í efni þessarar færslu og afleiðingar hennar er ritskoðun af svipuðum toga og átti stað í Þýskalandi nútímans. Fólk sem er ekki tilbúið að færa þá fórn að leyfa Geir Ólafs að dansa sig í gegnum gólfið hjá sér(loftið hjá Geir Ólafs) og dansa sig síðan í gegnum loftið eru fasistar!

Jæja það er þá bara eitt lag eftir og það er ekki af verri endanum en það er hið svokallaða Dr.Wily’s theme. Klárlega eitrað lag sem er jafnvel álíka eitrað og Boss theme úr Double dragon 2. Ef ekki eitraðara … maður spyr sig!

Fyrir þá sem eiga það eftir þá bendi ég á færsluna Nes, snes og bles sem ítarefni

Góðar stundir!

Það er einhver lykt af þessu …
Ég skil þetta ekki ….

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="480" height="390" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="src" value="http://blip.tv/play/Ac3%2BaQI" /><param name="allowfullscreen" value="true" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="480" height="390" src="http://blip.tv/play/Ac3%2BaQI" allowfullscreen="true"></embed></object>

Nes Snes og BLES!
Þar sem nú er prófatíð og maður hefur ekkert nema lausan tíma til að eyða þá er ég að sjálfsögðu búinn að hanga á youtube. Og hvað finnur maður ekki á youtube?

Meðal myndbanda sem ég fann ekki á youtube er “extreme ironing” myndbandið með Geir Ólafs, “extreme dishwashing” með Urðu, “extreme drinking” með Kidda Gólster eða “extreme not killing yourself on a motorcycle” með Svabb-Fresh.

En meðal dásamlegra myndbanda sem ég fann á youtube og vakti upp dásamlegar minningar úr æskunni var myndband úr double dragon 2. Stórkostlegum leik sem enginn sem er ekki moðhaus og rassálfur man ekki eftir. Tónlistin var dásamleg, brögðin voru dásamleg og leikurinn hreint út sagt dásamlegur! Hvar annarsstaðar en í Double dragon færðu að ganga um og berja einhverjar stórbrjósta trukkalessur í bleiku og síðhærð faggaógeð í grænum buxum bera að ofan og með axlabönd?  Að ekki sé minnst á blúsbræðurnar sem koma alltaf 2 saman í hvítum jökkum og með sólgleraugu og svo Hanson bræðurna vopnaða sverðum! Klassík!

Ég verð samt að hrósa kappanum í myndbandinu fyrir alveg einstaklega ömurlegan leikstíl, það er mér til efs að það sé hægt að spila leikinn jafn illa og hann gerir.

<object width="480" height="385" data="http://www.youtube.com/v/JtMjEqVQjgc&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/JtMjEqVQjgc&hl=en&fs=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Double Dragon 2 var dásamlegur, en double dragon 3 var ÖMURLEGUR, algerlega óspilandi og þvílíkt erfiður að það komst enginn eðlilegur maður upp úr fyrsta borði. Ég leitaði og ég fann, og þetta er dásamlegt. Horfið á þetta myndband, þessi maður er nýi besti vinur minn!

<object width="480" height="385" data="http://www.youtube.com/v/kMg6_IXCjo4&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/kMg6_IXCjo4&hl=en&fs=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Síðan fór ég að velta því fyrir mér hvaða leiki ég spilaði eiginlega á nintendo, eða family game eins og við kölluðum tölvuna.

Það spiluðu náttúrulega allir mario bros 1-100 og það er öllum drullusama um þá leiki í dag! En einn af leikjunum sem við spiluðum og örugglega enginn veit hvað er var leikur sem heitir Jackal og gengur út á að aka um á herbíl og sprengja allt í tætlur! Illa elgpeggaður leikur eins og einhver kynni að orða það!

<object width="480" height="385" data="http://www.youtube.com/v/cuEkmyd-DUY&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/cuEkmyd-DUY&hl=en&fs=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Síðan var leikur sem enn og aftur veit hvað heitir! Ég vissi það eiginlega ekki sjálfur fyrr en bara nýlega því allt sem stóð á leiknum var á einhverju asíuletri og því hafði ég ekki hugmynd um hvað hann hét! En hann heitir semsagt að því er ég hef fundið út, Jackie Chan!

<object width="480" height="385" data="http://www.youtube.com/v/lOsuOjyswKY&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash"><param name="allowFullScreen" value="true" /><param name="allowscriptaccess" value="always" /><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/lOsuOjyswKY&hl=en&fs=1" /><param name="allowfullscreen" value="true" /></object>

Klárlega dásamlegur leikur svo ekki sé meira sagt!

Ég get þó ómögulega munað eftir fleiri leikjum! Klárlega að þessir voru bestir, eða verstir … eða allaveganna eftirminnilegastir!

Jósefsdalshringurinn
Lífið tekur stundum skrýtnar beygjur og sú skrýtnasta var væntanlega þegar að U-Fresh tilkynnti öllum að hann langaði að túlka náttúruna að hætti Ron Paul. Killerinn tók vel í þetta enda hafði hann ekki slátrað fjöllum í langan tíma svo hann pakkaði öxinni og Gisura-Kun var bara spenntur fyrir því að fá að fara út að labba.

Ég ákvað að fara með þeim félögum og skrásetja ævintýrið!

Killerinn með öxina reidda horfir í átt að fjallinu meðan Gisura-kun er ógnarspenntur!

U-Fresh hugsar um frjálshyggju Ron Paul meðan að Gisura-kun er ógnarspenntur!

Killerinn með öxina reidda bíður átekta eftir því að slátra fjallinu meðan ég tek mynd sem ég svo með ógnarhraða hleyp inn á og til baka aftur, líkt og vélin væri á þrífæti. Trúirðu mér ekki? Kallarðu mig lygara? Hvernig vogarðu þér!

Hópurinn eftir að hringnum hafði verið lokað, Vífilsfellið í bakgrunni er photoshoppað inn á myndina þar sem það er augljóslega ekki þarna lengur. Því Killerinn slátraði því!

Killerinn á Sauðdalahnúk, eða alltsvo fyrrum Sauðdalahnúk því fjallið er ekki lengur til staðar því Killerinn slátraði því. Takið eftir því hvernig öxin er reidd, þarna er klárlega á ferðinni fagmaður og því ætti enginn að reyna að leika þetta eftir!

Takið eftir stórkostlegri photoshop-vinnslu minni sem kristallast í fjallinu sem sést í bakgrunni, þetta fjall er augljóslega ekki þarna því Killerinn slátraði því.

Svona geta ævintýrin verið og ekki verra að blanda þeim nokkrum jarðfræðilegum hugtökum svo sem fjallaeyðingu!

Niðurstaða: Ron Paul er “new hope for America”, Gisura-Kun var ógnarspenntur og Killerinn komst að  XMF-301 Mountain Destroyer öxin er hverrar krónu virði,  á hreinlega engan sinn líka og þótt víðar væri leitað, jafnvel meðal ólíkra!

Hahaha fávitar!
Og Steingrímur J. Sigfússon kemst athugasemdalaust upp með að fullyrða í fréttum að peningarnir komi ekki frá skattgreiðendum því þeir komi frá opinberum stofnunum, eins og atvinnuleysistryggingasjóði og Íbúðarlánasjóði. Ætli íslenskir fréttamenn séu bara almennt hættir störfum? Hvaðan ætli þessar opinberu stofnanir fái peninga sína? Bara með vindinum? Og ef þessir peningar voru til og lágu undir skemmdum hjá ríkinu, af hverju voru skattar þá ekki lækkaðir svo fyrirtæki og einstaklingar hefðu úr meiru að spila þegar staða beggja er tvísýn?

www.andriki.is

Hahahaha, Andriki hafa svo verið að fara á kostum undanfarna daga og þessi pistill nær nýjum hæðum í gleði og snilld!

Toshihiko Sahashi
Toshihiko Sahashi er japanskt tónskáld og mikill meistari í þeim efnum! Hans helsta sérkenni hefur sennilega verið að blanda saman synfóníu við hefðbundin hljóðfæri ásamt illa helluðum speisuðum og útúrþvældum ofurhetjutöktum á hljómborðinu!

Með betri lögum hans er hið eitursvala lag Senkyou Houkoku sem hann samdi fyrir Gundam Seed!

Meðal annara laga sem eftir hann liggja eru lög eins og Kira Sono Kokoro no mama ni sem hann samdi fyrir Gundam Seed Destiny

Toshihiko var þó ekki alveg hættur að semja fyrir Gundam Seed því eftir hann liggja líka stórbrotnar línur eins og Shusshou Hisoka Kaname og lagið Countdown!

Toshihiko hefur þó ekki bara samið fyrir Gundam Seed, hann samdi einnig snilldarlög fyrir Full Metal Panic þættina, til dæmis Cool Running þar sem hljómborðið var nýtt til hinnar ítrustu fullnustu eða svo gott sem nánast!

Að ekki sé minnst á hið eitursvala Tatakau M9 sem hann samdi einmitt fyrir sömu þætti. Þarna er hljómborðinu refsað hressilega

Úr Full metal panic: the second raid leit þetta lag Shisshou fyrst dagsins ljós!

Og svo Rau Le Creuset þemað Shisshou Hisoka Kaname

Lesendum ætti því að vera ljóst að hér á ferðinni mikill meistari, þ.e. þau ykkar sem heyra almennilega!

Töffari
Já, komið er að því að útdeila kúlstigum, þeim fyrstu á þessu ári og að þessu sinni eru stigin alveg sérstaklega verðskulduð.

Til er fólk sem er á móti hvalveiðum einhverra hluta vegna, ég var ekki alveg viss hvaða orð væru notuð til að lýsa slíku fólki svo ég fletti því upp í orðabók og orðið er hálfvitar!

En svo eru til snillingar sem eru ekki á móti hvalveiðum og vilja jafnvel leyfa hvalveiðar og það er sérstaklega aðdáunarvert! Einn þessara snillinga er hæstvirtur sjávarútvegsráðherra okkar hann Einar Kristinn Guðfinnsson. Einar tók sig nýverið til og leyfði hvalveiðar næstu 5 árin. Það er sérstaklega aðdáunarvert og fyrir þann gjörning fær Einar heil 5 kúlstig eða 1 kúlstig fyrir hvert ár sem hann leyfði hvalveiðar.

Að sjá þennan kappa, 5 stiga maðurinn Einar!

Ronskie Paulus!
Eitt merki þess að Bandaríkjamenn séu ekkert allt of skýrir í kollinum er sú staðreynd að Ron Paul er ekki verðandi forseti.

<object width="640" height="505"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/RYHC7ckpbZo&hl=en&fs=1&rel=0"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/RYHC7ckpbZo&hl=en&fs=1&rel=0" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="640" height="505"></embed></object>

Hefði ég sett texta hérna, þá hefði enginn nennt að lesa hann …