Orðabókin

Í þættinum í dag verða tekin fyrir orðin jafnrétti og jafnstaða.

Jafnrétti er einfalt og gegnsætt orð sem vísir til þess að rétturinn sé jafn og í framhaldi af því mætti segja sem svo að þar sem jafnrétti er við lýði njóta allir jafns réttar. Einfalt!

Jafnstaða er svo það þegar að hlutföll einhverra hópa innan heildarinnar eru jöfn. T.d. karlar og konur eða hvítir og svartir(gildir augljóslega ekki á íslandi), menntaðir og ómenntaðir og síðan ljótir og fallegir. Að sama skapi fremur einfalt, eða svo hefði maður haldið!

Jafnstöðu er oft ruglað saman við jafnrétti og þegar í hámarki talin vísa til þess að þar ráði algert jafnrétti. Jafnvel er reynt að blekkja með því að vísa til þess að þar sem ekki ríki jafnstaða þá ríki í raun ekki jafnrétti á þeim bænum og er blekkingin algengari en rangfærslan þar sem blessunarlega jafnstaða er nánast hvergi við lýði.

Oftar en ekki eru þar að verki óhæfir einstaklingar sem vilja komast að í krafti þess að einhver úr þeirra sauðahópi hafi átt starfan skilinn í ljósi óhagstæðs hlutfalls þeirra í jafnstöðunni, jafnvel þó allir er komu að hafi verið jafnir og því jafn réttur að hver sem er hlyti starfan.

Er oft einnig vísað til heimskulegs fyrirbæris er kallast “jákvæð mismunun” og er það þversögn á borð við “réttláta nauðgun”, “gott stríð” og “slæman frið” svo eitthvað sé nefnt. Rangnefni þessu er oft beitt í beinu samhengi við hina svokölluðu jafnstöðu og er þess þá krafist að jafnréttinu verði fórnað til þess að “leiðrétta” hlutföllin í jafnstöðunni svokölluðu sem eins og komið var inn á fyrr er ruglað saman við jafnrétti!

Skildu eftir athugasemd